Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.02.1990, Qupperneq 2

Faxi - 01.02.1990, Qupperneq 2
PÓSTUR OG SÍMI í KEFLAVÍK OG NJARÐVÍK Orösending um fermingarskeyti Til þess aö auðvelda sendingu og móttöku fermingarskeyta í síma býöur ritsíminn upp á ákveöna texta á skeytin. Velja má um fimm mismunandi texta; A, B, C, D og E. Skeytin eru rituð á heillaskeytablöö Pósts og síma. A — innilegar hamingjuóskir á . fermingardaginn. Kærar kveðjur. B — Bestu fermingar- og framtídaróskir. C — Hamingjuóskir tii fermingarbarns og foreldra. D — Guð blessi þér fermingardaginn og alla framtíö. E — Hjartanlegar hamingjuóskir á fermingardaginn. Bjarta framtíð. Ákveöiö hvaöa texta þér viljiö senda, hringiö í síma 15000 og gefið upp eftirfarandi: 1. Símanúmer og nafn þess, sem er skráöur notandi símans. 2. nafn og heimilisfang þess, sem á aö fá skeytið. 3. Bókstaf texta (A, B, o.s.frv.). 4. Undirskrift skeytisins (nafn eöa nöfn þeirra sem senda óskirnar). Þeir, sem óska geta aö sjálfsögöu orðað skeyti sína aö eigin vild. Þeir sem vilja notfæra sér þessa textaskeytaþjónustu, eru vinsamlega beönir aö geyma þessa orösendingu. Pessi skeyti má senda meö nokkurra daga fyrirvara, þó fermingarbörnin fái þau ekki fyrr en á fermingardaginn. Veljiö texta áöur en þið hringiö! Símanúmer okkar 15000 STÖÐVARSTJÓRI PÓSTS 0G SÍMA í KEFLAVÍK - NJARÐVÍK 2. tölublað 50 árgangur Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 11114. Blaðstjórn: Helgi Hólm ritstjóri, Kristján A. Jónsson aðstoðarritstjóri og Vilhjálmur Þórhallsson. Varamenn: Birgir Guðnason og Hjálmar Stefánsson. Hönnun, setning og umbrot: Leturval sf. Filmu- og plötugerð: Myndróf. Prentun: Prentstofa G. Benediktssonar. LÍTUM í EIGIN BARM! Þótt í heimi sé hart og til hrolluekju margt býr í hjartanu gróanda styrkur, því ekkert er svart þegar innra er bjart, þá er aldrei neitt skammdegismyrkur. Það er Lóa Þorkelsdóttir sem mælir þessi orð í ljóði sínu — Þá er bjart. Þessar ljóðlínur eiga vel við um þessar mundir, þegar svo margt í umhverfi okkar sýnir sínar dekkri hliðar. Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að missa ekki sjónar á hinum bjart- ari hliðum mannlífsins — gleyma ekki, að bjartsýnin er órofa- hluti framfara og framsækni. Vorið nálgast Þorrinn er að baki og góa hefur verið óvenju köld og grimm. Víða um landið hafa menn mátt þola erfiðar aðstæður, þótt við hér um slóðir höfum sloppið bærilega. En nú fer sólin ört hækkandi á lofti og vorið er á næsta leiti. Iljum okkur við þá tilhugsun og trúum því að í stað hins harða vetrar, þá munum við fá hlýtt og gott sumar. Ofbeldi á heimilinum Að undanförnu hafa dunið á okkur fréttir af hvers kyns afbrot- um, þar sem ofbeldi er haft í frammi. Það er með því sorgleg- asta sem gerist, þegar fólk verður fyrir ofbeldi og skiptir þá ekki máli, hvers konar ofbeldi um er að ræða. Sorgleg er einn- ig sú staðreynd, að mikið af þessu ofbeldi á sér stað á heimilun- um og þar eru það konurnar og börnin sem eru fórnarlömbin. Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd, að það eru ótal heimili þar sem að heimilisfaðirinn leyfir sér hvað eftir annað að beita fjölskyldu sína ofbeldi. Það er eitthvað mikið að hjá þeim mönnum sem leyfa sér slíkt. Þessir menn virðast ekki bera mikla virðingu fyrir sjálfum sér. — Þú sem lest þess- ar línur — ef þú ert einn af þeim sem átt við þetta vandamál að stríða — gerðu þá eitthvað jákvætt í málinu. Þú berð ábyrgð á því að börnin þín búi við öryggi heima hjá sér. * Afengisdrykkja færist í aukana Sala bjórs á íslandi hefur nú verið leyfð í eitt ár. Sjálfsagt er of snemmt að meta á raunsæjan hátt, hvaða afleiðingar hafa fylgt í kjölfarið. Sú staðreynd liggur þó fyrir, að neysla áfengis hefur aukist að miklum mun. Flestir hafa fram að þessu viður- kennt þá staðreynd, að áfengi og hvers kyns eiturefni eru manninum stórhættuleg. Ég held því, að menn ættu að staldra við og athuga, hvort ekki væri rétt að reyna að draga úr áfeng- isneyslu, frekar en að auka hana svo stórkostlega. H.H. 34 FAXI

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.