Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 13

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 13
SKÓLAR Á SUÐUR- NESJUM 7. Málarameistari var Ólafur Már Ólafsson. 8. Innréttingar voru smíðaðar í tré- smiðju Þorvaldar Ólafssonar. Minning Hér á eftir fara minningar um tvo látna „skólamenn". Þeir áttu það sameiginlegt að hafa starfað að skólamálum í Vatnsleysustrandar- hreppi í yfir þrjátíu ár og höfðu þeir mikil áhrif á gang skólamála í hreppnum. Þetta eru þau Viktoría Guðmundsdóttir skólastjóri, en hún starfaði við skólann í þrjátíu og eitt ár, og Árni Klemens Hallgrímsson skólanefndarformaður í þrjátíu og tvö ár. Viktoría Gudmundsdóttir Haustið 1921 var Viktoría Guð- mundsdóttir ráðin sem kennari að Brunnastöðum. Viktoría var fædd 3. júlí 1885 í Þjórsárholti í Gnúpverja- hreppi í Árnessýslu. Kennaraprófi lauk hún frá Flensborgarskóla árið 1904. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands árið 1919. Vet- urinn 1920—1921 dvaldist hún í Sví- þjóð og kynnti sér kennslu í kenn- araskólum (æfingaskólum) og barnaskólum. Viktoría hafði áður en hún réðist til starfa á Brunnstöð- um kennt í Biskupstungum, Laugar- dal og Grímsnesi. Hún andaðist 17. febr. 1970. Viktoría átti ekki upp á pallborðið hjá skólanefnd Vatnsleysuhverfis í upphafi. Hún var ráðin til að kenna við skólann gegn vilja nefndarinnar og sú ráðning átti eftir að valda miklum deilum. Skólanefndin hót- aði að segja af sér störfum, forsætis- ráðherra reyndi að fá hana ofan af þeirri ákvörðun, en allt kom fyrir ekki. Ný skólanefnd tók til starfa og verður ekki annað séð en að hún hafi verið mjög ánægð með störf Viktoríu. Viktoría var síðan starf- andi við skólann í þrjátiu og eitt ár og hafði mikil áhrif á mótun skóla og æsku þessa byggðarlags. Því ákváðum við að láta hér til gamans fylgja brot úr minningar- grein um hana eftir Ingibjörgu Er- lendsdóttur frá Kálfatjörn, en hún var nemandi Viktoríu og síðar sam- kennari við skólann. „Haustið 1921 kom hingað í hreppinn ung kona og gerðist kennari við barnaskólann. Þessi kona var Viktoría Guðmunds- dóttir. Um langt árabil var hún eini kennarinn og jafnframt skólastjóri hér og hafði veg og vanda af uppfræðslu allra ung- Eiríkur Smith listmálari gerði þetta málverk af Viktoríu. menna í hreppnum á þeim ár- um. Eg var barn að aldri er Viktor- ía hóf hér störf, en samt man ég hana vel frá þessum tíma. Þar sem faðir minn var þá oddviti hreppsins átti hún oft við hann erindi og á heimili foreldra minna (á Kálfatjörn) var hún jafnan aufúsugestur. ...Viktoría var hafsjór af fróðleik og frásögn hennar af mönnum og málefn- um var lifandi og litrík, krydduð kímni og gamansemi, hvort heldur var um að ræða atburði líðandi stundar eða löngu liðna tíð. Hún sagði svo skemmtilega frá, að börn jafnt sem fullorðnir hrifust með. Ég fann að foreldrar mínir mátu Viktoríu mikils og af umræðum þeirra heyrði ég að þau töldu það mikið lán að hafa fengið slíkan kennara í hrepp- inn. Enda reyndist það svo að Viktoría var kennari af Guðs náð, hollur uppalandi og frábær kennari. ...Er óhætt að fullyrða að Viktoría var meðal vitrustu og gagnmenntuðustu kennara á þessum tíma, skarpgáfuö var hún, minnug og margfróð og vel máli farin, auk margra fleiri kosta er gera kennara að góðum kennara. Hún var sönghneigð og lagviss, kunni ógrynni ljóða sem hún kryddaði oft mál sitt með. Hún var trúuð, reglusöm og bindindissinnuð. Hún vakti athygli nemenda sinna á öllu er til mannbóta horfði og brýndi fyrir þeim drengskap og heiðar- leika. Minnist ég þess að hún kvað það hin fegurstu ummæli er hlotnast gæti, er sagt var um einhvern að „hann var drengur góður". Ein var sú grein sem Viktoría unni mest og var henni nánast heilagt mál, en það var móður- málið og meðferð þess. Sjálf tal- aði hún og ritaði fagurt og vand- að mál. Hún lagði ríka áherslu á það í kennslu sinni að nemendur töluðu skýrt og rétt. í rituðu máli bæri að vera stuttorður og gagn- orður, forðast málalengingar og endurtekningar. Hafði hún á hraðbergi heila kafla úr fornbók- menntum máli sínu til skýringar, þar sem mikil saga var sögð í stuttu máli. Auk móðurmálsins voru íslandssaga og landafræði kjörgreinar Viktoríu og mörgum minnisstæðar frásagnir hennar í þeim greinum. ...Allir dagar byrjuðu með söng. Stóðu nem- endur í hóp fyrir framan kenn- arapúltið meðan sungið var. Síð- an spenntu allir greipar, lutu höfðu og lásu „faðir vor“. Er kennslu lauk var aftur safnast saman við púltið, sungið vers eða vísa og lesin blessunarorðin áður en haldið var heim. Allir kvöddu með handarbandi og þökkuðu fyrir daginn." Arni Klemens Hallgrímsson Árni Klemens Hallgrímsson var fæddur að Minni Vogum í Vogum, Vatnsleysustrandarhreppi hinn 17. október 1893. Foreldrar hans voru Hallgrímur Árnason, smiður í Stapakoti Njarðvíkum, og kona hans Guðrún Egilsdóttir. Árni Kle- mens var af merkum ættum kom- inn, djörfum, sterkum og gáfuðum og átti Árni í sér andlegt og líkam- legt magn dugnaðar, drengskapar og andlegrar æsku. Menntun sína hlaut Árni í Flensborgarskóla og lauk hann þaðan gagnfræðaprófi. Eins og fyrr segir var Árni skóla- nefndarformaður í þrjátíu og tvö ár og hlýtur því að hafa haft mikil áhrif á það hvernig skólamál þróuðust í byggðarlaginu. Allir þeir sem hann muna eru á einu máli um að hann hafi lagt metnað sinn í að skólamál gengju vel fyrir sig á meðan hann gegndi embætti skólanefndarfor- manns. Til gamans má geta þess að það var ekki einungis skólamál sem Árni hafði áhuga á í sinni heima- byggð, því hann gegndi mörgum- MUNIÐ ORKII- REIKNINGANA Eindagi orkureikninga er 15. hvers mánadar. Látid orkureikninginn hafa forgang Hitaveita Suðurnesja FAXI 45

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.