Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 7
SKÓLAR
A SUÐURNiSJUM
í fundargerð skólanefndar Vatns-
leysustrandarhrepps þann 28. sept-
ember 1924 er fyrst ýjað að endur-
nýjun skólahalds í Vatnsleysuskól-
anum. A þeim fundi var tekin fyrir
beiðni frá innanheiðarmönnum þar
sem þeir fóru fram á að fá kennslu
fyrir innan heiði um einhvern tíma
á vetrinum. Engin ákvörðun var þó
tekin á þessum fundi hvað viðvék
þessu máli og virðist málið hafa
dagað uppi það ár.
A fundi höldnum 13. september
1925 samþykkti skólanefndin að
starfrækja skyldi skóla í Vatnsleysu-
skólanum veturinn 1925—’26. Sam-
þykkt var að kennslufyrirkomulag-
ið skyldi vera þannig að kennari í
Suðurkotsskólanum Viktoría Guð-
mundsdóttir, skyldi kenna í báðum
skólunum á víxl samkvæmt gild-
VATNSLEYSUSKOLINN
andi fræðslulögum. Á sama fundi
samþykkti skólanefndin að fela
skólanefndarformanni að sjá um að
framkvæmdar yrðu nauðsynlegar
umbætur á skólahúsinu á Vatns-
leysu.
í skólasetningarræðu sinni þann
1. október, lýsti skólastjórinn hvern-
ig hann hugsaði sér fyrirkomulag
kennslunnar. Kennt skyldi 2 mánuði
á Vatnsleysu en 4 mánuði í Suður-
koti.
Viku síðar, eða 8. október, virðist
sem Viktoría hafi verið komin á þá
skoðun að slíkt fyrirkomulag á
kennslunni væri óheppilegt. í bréfi
sínu til skólanefndar þann dag segir
hún meðal annars: Þennan vetur
(1925—’26) var þó kennt með áður-
greindum hætti, þ.e. tvo mánuði
(desember og frá miðjum febr. til
miðs mars) í Vatnsleysuskólanum,
en fjóra mánuði í Suðurkotsskólan-
um. Nemendur í Vatnsleysuskólan-
um voru 8 þennan vetur en 21 í Suð-
urkoti.
Þetta fyrirkomulag, hefur trúlega
ekki reynst sem skyldi, því að þann
19. september 1926 ákvað skóla-
nefndin að ráða kennara til 4ra
mánaða farskólakennslu í Vatns-
leysuskólanum. Kristmann Runólfs-
son var ráðinn sem kennari.
Veturinn eftir var kennslutímabil-
ið lengt í sex mánuði.
Skólahald í Vatnsleysuskólanum
var óbreytt næstu ár. Kennarar voru
þeir Skúli Guðmundsson, Guð-
mundur Magnússon, Magnús í.
Stephensen og Elín Guðnadóttir.
Haustið 1934 var ákveðið að
stytta kennslutímann í Vatnsleysu-
skólanum niður í 16 vikur. Jafn-
framt var Ingibjörg Erlendsdóttir á
Kálfatjörn ráðin kennari skólans
það haust.
Haustið 1936 tók Stefán Hallsson
við kennarastarfinu í skólanum, en
hann hafði verið settur kennari við
Suðurkotsskólann tvo vetur á und-
an.
Þá breytingu átti að gera á skóla-
haldi í Vatnsleysuskólanum 1938, að
börnum innanheiðarmanna, sem
yngri voru en 12 ára, átti að kenna
í tvo mánuði í skólanum þar, en hin-
um eldri var gert að skyldu að sækja
Suðurkotsskólann. Börnin ,og/eða
foreldrar þeirra, vildu ekki una þess-
ari ákvörðun skólanefndar og hund-
suðu hana og varð það úr að Stefán
Hallsson kenndi þeim eldri með
yngri börnunum í tvo mánuði. Auk
FAXI 39