Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 30

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 30
Bæjarhljómsveitin í Kardemommubæ. Uppfærslan frá 1959—60. Kardemommu- bsrinn FRAMHALD AF BLS. 53 „Ég er bæjarfógetinn Bastían og blíður á manninn er, því að þannig tel ég sæmd að maður sé.“ Bastían er mildur maður í skapi og hann er líka huglítill. En samt er hann úrræðagóður er á reynir og laginn við fólk. Líklega er það lagn- in sem skiptir mestu máíi í starfi hans, ekki fyrirgangurinn. Hins veg- ar trúir bæjarfógetinn tæplega nokkru misjöfnu upp á sambæinga sína. Enda eru þeir í raun og veru löghlýðnir borgarar. Þrír eru þó menn, sem búa saman skammt utan við bæinn á eyðilegri sléttu, í skrýtnu háu húsi. Þetta eru ræningjarnir, Kasper, Jesper og Jónatan. „En þeir eru ekki eins vondir menn og margir aðrir ræn- ingjar og lengst af halda þeir kyrru fyrir í húsinu sínu.“ (Bls. 13). Höf- undur er strax í upphafi ákveðinn í að ræningjarnir „mættu ekki vera vondir og illúðlegir. Börnin áttu alltaf að trúa á hið góða í þessum þremur ræningjum. Þeir áttu að sýna, að hægt er að taka sig á ef menn rata rétta leið“. (Mbl. 19. jan. 1960). Ræningjarnir eru aðalpersónur leikritsins og bókarinnar. Um þá og mynd þeirra snýst atburðarásin að mestu. í þessum orðum, sem vitnað var til hér áðan, og eru höfð eftir Thorbjörn Egner sjálfum, kemur fram aðalboðskapur sögunnar. Trú- in á samhjálp og hið góða. Hið góða í mönnum. Stöldrum nánar við þessa þrjá furðufugla. Þeir stóðu utan við mannlegt sam- félag, en undir niðri langaði þá til að komast í samband við bæjarbúa. Á því er ekki vafi. Þegar Karde- mommuhátíðin var haldin í bænum með söng og hljóðfæraslætti, stóðu ræningjarnir uppi í tré utan við bæ- inn og „þaðan sáu þeir hringekjuna og fílinn og kameldýrið talandi og sitt af hverju. — Það er víst gaman þarna, sagði Jónatan. — Það er líka gaman hjá okkur, sagði Kasper. — Ekki eins, sagði Jesper". (Bls. 43) Eftir þessar samræður ákváðu ræningjarnir að fara til bæjarins næstu nótt og ræna sporvagninum. Fara eina ferð með honum til að bæta upp fjarvistina frá hátíðinni. Enda varð þeim Berg kaupmanni, pylsugerðarmanninum og bakaran- um órótt eftir þá heimsókn. Þeir ótt- uðust ræningjana. En ástandið heima hjá ræningjun- um var slæmt. Allt var þar á öðrum endanum. Enginn nennti að búa til mat og enginn tók til. Þannig jókst ringulreiðin stöðugt. Þar kom að ræningjarnir gáfust upp á sjálfum sér til allra húsverka. Ástand þeirra og líðan kemur greinilega fram í vís- unum, sem hafa að upphafi: „Hvar er húfan mín? Hvar er hempan mín?“. Lausn þeirra á málunum var í senn einföld, en gömul lausn í sam- félagi karla: Að fá sér kvenmann í húsverkin. Ljóst er að ræningjarnir voru aldir þannig upp að þeir voru með öllu óvanir húsverkum og til- tektum. Matartilbúningur var þeim fjarri. Það skýrir að nokkru neyð þeirra og ástæðuna til að þeir ræna sér til framfæris. En ræna urðu þeir konunni. Mannrán er einn alvarleg- asti glæpur sem þekkist, þó algeng- ur sé nú til dags. En í sögunni er rán- ið á Soffíu frænku mildað á kýmileg- an hátt með flutningi hennar í hengirúminu. Enginn telur slíkt atr- iði til skaða í barnabók. Auk þess mildar höfundur atburðinn enn frekar með því að láta ræningjana skila Soffíu heim til sín á ný. Slíkt er ekki háttur ræningja. Þegar Soffía vaknaði um morgun- inn í húsi ræningjanna, hvessti hún glyrnurnar á þá, og krafðist skýr- inga á þessum flutningum. — „Og hvernig og hvers vegna er ég hingað komin? spurði hún. — Þannig er mál með vexti að við þurfum einhvern í húsverkin, sagði Kasper. — Einhvern sem getur haldið öllu í röð og reglu, sagði Jesper. — Og einhvern sem getur búið til mat, sagði Jónatan. — Og hvað ætlið þið að gera sjálf- ir? spurði Soffía. — Nú, sagði Kasper, við ætlum að gera það sem okkur sýnist." (Bls. 65). Þarna eru auðsæ tengsl við hug- myndir fyrri tíma þegar konur gengu til þjónustu á heimilum við karlmenn, sem oft höguðu frítíma sínum að eigin vild, meðan konurn- ar höfðu nóg að gera innanhúss. Að mati ræningjanna virtist líka allt leysast ef aðeins kona kæmi í hús- verkin. En það reyndist öðru nær. Þá fyrst upphófst gauragangurinn á heimilinu. Svo skaprnikil er hún, að hún er ólík öllum öðrum í Karde- mommubæ. Hún er andstæða bæj- arfógetans, enda hefur hún lítið álit á honum. Soffía er þó ekki vinsæl að sama skapi. Er ræningjarnir sáu að hún var ekki heppileg til húsverka, gaf Jesper ljóninu merki um að yggla sig framan í Soffíu, svo hún yrði hrædd. En svo önnum kafin var hún við húsverkin, að hún danglaði aðeins hendinni í það og skipaði „kattarkvikindinu" að snáfa burt. Ljónið lallaði burtu skömmustulegt. Hins vegar var bæjarfógetanum lít- ið um ljónið, sennilega af því að hann þekkti það ekki. Ljónið ræn- ingjanna var nefnilega gott ljón — líkt og fólkið sjálft. Daginn eftir að Soffíu var rænt komu þrír menn heim að húsi ræn- ingjanna og ætluðu að sækja Soffíu. En hún vildi ekki fara með þeim. Kvaðst hún heldur ætla að koma ræningjunum í ræktunarstörf. Til að gera þá að nýjum mönnum. (Bls. 75). Hér kemur fram gamalkunnugt ráð til mannbóta. En þar kom að ræningjarnir voru handteknir í bakaríinu. Hlutu þeir dóm í fangelsi í 48 daga. Dvölin þar 62 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.