Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 5

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 5
A . árinu 1989 voru fluttar út með flugi frá Keflavíkurflugvelli um 7700 tonn af vörum. Árið 1980 var þetta 1457 tonn, þannig að sjá má, að um mikla aukningu hefur verið að ræða. Samkvæmt upplýsingum sem Faxi fékk hjá Kristni Eyjólfssyni hjá flugfrakt Flugleiða, þá má alveg reikna með þvi, að um 80% af þessu magni sé ferskur fiskur, þar með tal- inn lax. Þar sem hér er í raun um geysilegt magn að ræða sem mikið á upptök sín héðan af Suðurnesjum, þá þótti Faxa ástæða til að kanna þessi mál nánar. Á árunum eftir 1970 vaknaði áhugi manna á íslandi fyrir útflutn- Logi Þormóðsson sýnir, hvernig af- hreystrunarvélin virkar. fljótt brunaeftirlitsmaður, en ég og Bjargey kona mín, við héldum áfram og erum enn að, reyndar dró Eiríkur sig út úr Tros árið 1984." — Hvaða fisk var verið að senda út á þessum tíma og hvernig hefur hann þróast. Hvernig fáið þið fiskinn? „í upphafi var þetta að mestu leyti skötubörð. Einnig heil eða hausuð ýsa, þorskur og karfi. Þetta þróaðist' síðan smátt og smátt eftir því sem markaðurinn kallaði á og við fórum ingi á fiski með flugi. Á Suðurnesj- um sáu menn ekki síst möguleikana á þessu sviði, því hér var flugvöllur- inn við bæjardyrnar og stutt á fiski- mið. Gerðar voru ýmsar tilraunir, m.a. reyndu menn að koma á lagg- irnar flugfélagi í því augnamiði að annast fiskflutninga. Ymsa aðila mætti nefna sem gerðu góða hluti, t.d. Pál Axelsson í Keflavík, Ásgeir hf. í Garði o.fl. Flestar þessar tilraun- ir skiluðu þó ekki þeim árangri er menn vonuðust eftir og einn af öðr- um gáfust menn upp, en þó ekki all- ir. Meðal þeirra sem eftir stóðu var Eiríkur Hjartarson. Honum tókst að skapa sér grundvöll til að starfa á. Árið 1977 flutti fyrirtæki hans út umtalsvert magn af fiski með flugi á markaði í Englandi. Það ár gengur hann til samstarfs við viðmælanda okkar, Loga Þormóðsson, sem hefur síðan þá fengist við að verka ferskan fisk til útflutnings með flugi. Er það ekki ofmælt, að Logi er einn af frumkvöðlum þessarar greinar fisk- verkunar á íslandi. Faxi fékk Loga til viðtals um þessi mál einn sunnudagsmorgun, þegar vindurinn gnauðaði við gluggana og fannhvítt snæfokið byrgði mönn- um sýn. í viðtalinu kom aftur á móti í Ijós, að það var ekkert sem byrgði Loga sýn á möguleikum lslendinga í útflutningi og sölu á ferskum fiski. Byrjuðum við Vesturgötuna — Þegar Eiríkur Hjartarson leitaði eftir samstarfi við þig þarna um árið, hvað hafði hann þá í huga? „Eiríkur hafði fram að þessu sjálf- ur staðið í því að kaupa fisk hjá hin- um og þessum og hann sá að það gat ekki gengið til lengdar. Hann vildi því stofna fyrirtæki sem myndi vinna fiskinn á þann hátt sem við átti vegna markaðarins hverju sinni. Það varð því úr, að ég og Jóhannes Sigurðsson gengum til liðs við Eirík. Hann rak þá fyrirtækið ístros og við stofnuðum nýtt fyrirtæki sem við kölluðum Tros. Við fengum hús- næði á leigu hjá Sigurði Magnússyni á Nýjalandi, en hann átti fiskverk- unarhús við Vesturgötuna í Kefla- vík. Við ætluðum í fyrstu að vinna að þessu með öðrum störfum, en það gekk ekki. Jóhannes gerðist Sólrún Hinriksdóttir að störfum við pökkunina á glænýjum fiskinum. FAXI 37

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.