Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 20

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 20
Faxi hefur frá upphafi birt frásagnir af starfi leikfélaga og leikhópa. Leikdómarnir eru orðnir æði margir. Skúli Magnússon hefur tekið saman eftirfarandi pistil um leikritið Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner. Kardemommubærinn eftír Thorbjörn Egner „Við læðumst hægt um laut og gil og leyndar þræðum götur, á hærusekki heldur einn en hinir bera fötur. Að ræna er best um blakka nótt, i bænum sofa allir rótt. Þó tökum við aldrei of eða van, hvorki Kasper og Jesper né Jónatan.“ Þetta erindi varð landsfleygt hér á landi strax í upphafi árs 1960. Eftir örfáar vikur þekkti hvert manns- barn leikinn, sem erindið er sungið í. Það er úr Ræningjavísum í leikrit- inu Kardemommubærinn, sem Þjóðleikhúsið frumsýndi 21. janúar sama ár. Varð aðsókn að leiknum svo mikil strax í upphafi, að hún sló öll fyrri met hjá leikhúsinu. Sóttu sýningarnar börn jafnt sem full- orðnir. En það er eitt meginein- kennið á góðu barnaleikriti, að það höfðar jafnt til allra aldurshópa, hvenær og hvar sem er. Óháð stað og tíma. Verkið er eitt og sérstætt í senn, frumlegt og ævintýralegt að máli og stíl. En boðskapur þess þó tákn hins mannlega anda sem kom fram eftir stríðið, að hægt sé að bæta mennina og veröldina. Ári eftir frumsýningu í Þjóðleik- húsinu kom Kardemommubærinn út í bókarformi á íslensku. Var bókin öll skreytt litmyndum eftir höfund- inn, Thorbjörn Egner. Var sú útgáfa trúlega nokkur nýjung í útgáfu barnabóka á íslandi. Enda litprent- uð í bak og fyrir. Hulda Valtýsdóttir þýddi meginmál bókarinnar og leik- ritsins en Kristján frá Djúpalæk þýddi söngtexta. Skömmu síðar var uppfærsla Þjóðleikhússins gefin út á plötu. Varð hún geysivinsæl. Var slík útgáfa á leikriti algjör nýjung hér á landi. En hvað er það í raun og veru sem tær fólk til að hlæja í hvert sinn sem það heyrir minnst á Kardemommu- bæinn? Áreiðanlega kímnilegar persónur sem oft syngja við störf sín. Lög og textar eftir Thorbjörn Egner eru auðveldir og fljótlærðir. Auk þess má færa lögin yfir á aðra texta, enda hefur það oft verið gert við önnur tækifæri. Litríkir búning- ar og umfram allt snjöll sviðsmynd á líka sinn þátt í vinsældum verksins. Sú mynd er líka björt og hlý. Oftast skín sól á kardemomma. Leikmynd og búningar er einnig verk höfund- arins sjálfs. Kardemommubærinn er eins konar óperetta. Kardemommubærinn var upphaf- lega skrifaður sem framhaldsleikrit fyrir barnatíma í norska ríkisútvarp- inu skömmu eftir 1950. Árið 1955 kom verkið út í söguformi í Noregi. Ári síðar var það sýnt í norska Þjóð- leikhúsinu í Ösló. Thorbjörn Egner samdi leikverk- ið með aðstoð barna, bæði sinna eigin og annarra. Hann las leikritið fyrir þau og ræddi við þau um per- sónurnar og gerðir þeirra. Þau bentu á það sem þeim fannst að bet- ur mætti fara og Thorbjörn felldi það brott, en hann breytti líka og bætti við ýmsu öðru, er laga þurfti. Þannig tók hann beinlínis mið af heimi barnanna sjálfra. Líklega er það þetta sem gefur leiknum og bókinni mest gildi. Sennilega hefur Thorbjörn notað sér þessa leið enn frekar en margir aðrir höfundar barnabóka. Þó er Ijóst að fjölmargir höfundar hafa unnið bækur sínar á svipaðan hátt, en mismikið stuðst við athugasemdir barnanna. Fljótlega eftir sýningar norska Þjóðleikhússins tóku önnur leikhús Kardemommubæinn til sýninga og fór hann sigurför um Evrópu næstu árin. Leikurinn hét upphaflega „Fólk og ræningjar í Kardemommu- bæ“. Nafn bæjarins vísar til suð- rænnar sólar og ilms af appelsínum, 52 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.