Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 23
Viö sögðum í fyrra frá úrslitunum í golfinu hjá atvinnumönnunum í
Evrópu. Þar sem ritstjóri Faxa er mikill áhugamaður um íþróttir og ekki
hvað síst golfið, þá skjótum við hér inn lokastöðunni á Volvo-mótaröðinni
1989.
Eins og menn muna ef til vill, þá var hin bráðskemmtilegi Severiano Ball-
esteros í fyrsta sæti árið 1988 og Nick Faldo í öðru sæti. Þá varð í níunda
sæti 24 ára gamall íri, Ronan Rafferty, að nafni. Ronan áttu nú frábært ár
svo ekki sé meira sagt. Hann vann sína fyrstu 72 holu keppni í Evrópu,
reyndar vann hann þrjú mót, hann átti sæti í Ryder-sveit Evrópu og hann
varð að lokum efstur á Volvo-listanum í lok ársins. Hann lauk árinu með
glæsibrag, vann sigur í Volvo Masters-mótinu í Valdorama á Spáni, síðasta
mótinu á mótaröðinni.
LOKARÖÐIN: 1. Ronan Rafferty Irland kr. 40.831.722
2. Jose Maria Olazabal Spánn kr. 34.296.378
3. Craig Parry Ástralía kr. 28.286.742
4. Nick Faldo England kr. 26.678.304
5. Mark James England kr. 25.083.343
6. lan Woosnam Wales kr. 21.430.020
7. Bernhard Langer Þýskaland kr. 20.929.788
8. Seve Ballesteros Spánn kr. 20.681.172
9. Mark Mc. Nulty Zimbabwe kr. 18.328.686
10. David Feherty írland kr. 18.173.034
Frændur okkar Svíar hafa á undanförnum árum átt marga góða golfleik-
ara. Á síðasta ári voru það Ove Sellberg og Mats Lanner sem náðu bestum
árangri. Ove varð í 29. sæti með kr. 10.360.650 og Mats í 32. sæti með kr.
9.723.366. Danskir golfleikarar eru einnig farnir að reyna sig í mótunum.
Anders Sörensen varð í 102 sæti og vann til kr. 2.346.000 og Steen Tinning
í 117. sæti með kr. 1.876.596. Vonandi fáum við að sjá íslensk nöfn á
Volvo-listanum áður en langt um líður.