Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 11

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 11
 Skólastjóri og kennarar við Stóru-Vogaskóla veturinn 1989—1990. Á mynd- ina vantar Guðmund Sigurvaldason og Frank Herlufsen. Á myndinni eru standandi frá vinstri: Guðmar Þór Hauksson, Unnur Inga Karlsdóttir, Guð- mundur Þórðarson, Anna M. Ólafsdóttir og Helga S. Árnadóttir. Sitjandi eru þeir Jón Ingi Baldursson yfirkennari, Bergsveinn Auðunsson skólastjóri og Halldór lngvason. að búið sé að steypa grunn heiman- gönguskólans í Vatnsleysustrandar- skólahverfi og sagt að frekari fram- kvæmdir verði látnar bíða næsta vors. Síðan segir í bréfi til sama aðila 13. sept. 1944: „Brunnastaðaskólabyggingin á Vatnsleysuströnd er nú það langt komin að húsið er fullsteypt og komið undir þak, utanhússléttun að mestu lokið og sléttun innan- húss að allverulegu leyti. Verið er að afla hitunartækja í húsið, sem vonir eru til að fáist fljót- lega." I þessu húsi voru þrjár kennslu- stofur, ein til afnota fyrir kennara, hitaklefi, geymsla og geymsluloft. Sökum þess hve fjárhagur hreppsins var knappur og húsið frekar lítið og engin íburður í því. Engir styrkir munu hafa fengist til byggingarinn- ar og lán lítil og til stutts tíma. Um- sjónarmaður byggingarinnar var Jón G. Benediktsson þáverandi odd- viti hreppsins. Eins og áður segir var fjárhagur hreppsins bágur og það hefur ef til vill valdið því að húsið var ekki nægilega vel byggt, en það þurfti að gera verulegar lagfæringar á því að- eins tíu árum eftir að það var tekið í notkun. Þá segir m.a. í bréfi til hreppsnefndarinnar frá skólanefnd- inni (bréfið er dagsett 1. maí 1954): Á fundi skólanefndar var sam- þykkt tilmæli til hreppsnefndarinn- ar um að hún léti þá þegar það vor fara fram gagngerðar endurbætur á skólahúsinu, vegna þess að það væri hriplekt. Einangra þyrfti út- veggi suður- og austurhliðar húss- ins, dúka þyrfti gólfin eða setja ann- að það efni á þau sem hentugt þætti, breyta þyrfti snyrtiklefum hússins svo og að gera við baðklefa þess. Hljóðeinangra þyrfti loftið, glugga að þétta og mála þyrfþ og fleira. Þrátt fyrir að húsið hafi varla hald- ið vindi og regni og þurft hafi að gera á því endurbætur svo fljótt sem raun varð á, þá er ljóst að skólahús- ið var bylting á skólamálum á Vatns- leysuströndinni og það hlýtur að hafa verið áhugafólki um velferð og menntun ungmenna hreppsins hvatning. Akstur skólabarna Eins og fyrr segir ákvað skóla- nefnd Brunnastaðaskóla á fundi sín- um 6. desember 1942 að leita fyrir sér um leigu á bíl til að flytja daglega þau börn, sem sækja áttu Vatns- leysuskólann, í skólann að Brunna- stöðum. Jafnframt var ákveðið að hefja undirbúning að daglegum bíl- flutningi skólabarna til og frá skól- anum á Brunnastöðum næsta skóla- ár. Haustið eftir, eða 25. september 1943, var mál þetta ítrekað og for- manni skólanefndar, í samráði við oddvita hreppsins, falið að koma þessu máli í framkvæmd. Þá þegar hafði Stefán kennari Hallsson búið sig undir að taka að sér keyrslu á slíkum bíl. Útslagið gerði ef til vill síðan það, að haustið 1943 féllust skólanefndir barnaskólanna á Vatnsleysuströnd og Ölfusskólahéraði á það, fyrir milligöngu Bjarna M. Jónssonar, að gera tilraun til að flytja börn úr hlut- aðeigandi skólahverfum í og úr skólanum í sérstökum skólabilum sem hreppirnir keyptu. Ekki er hægt að sjá annað en að af þessum skólaakstri hafi orðið þau haust, því á fundi skólanefndar fimmtudaginn 8. nóv. 1945 þakkar námstjóri héraðsins, Bjarni M. Jóns- son, framkvæmdir í skólamálum er snertu húsbygginguna og skólabíl- inn. Á þeim fundi kom það einnig fram að skólabíll hefði ekki verið rekinn það haust, því gamli bíllinn hefði verið seldur þá um sumarið í von um að hægt yrði að kaupa setuliðs- bíl. Þegar það mál var athugað, kom í ljós að skólanefndin gat ekki fellt sig við neinn af þeim bílum sem í boði voru, og var því frá þeim kaup- um horfið. Hún ákvað þá í samráði við oddvita, að oddviti og formaður skólanefndar gengju frá þessu máli með kaupum á einhveri annarri bif- reið, enda kvaðst oddviti hafa auga- stað á bíl sem skólinn gæti fengið keyptan. Ennfremur kom það fram á fundinum, þegar rætt var um styrkveitingar til rekstrar og stofn- kostnaðar vegna skólabílsins, að hreppurinn hefði aðeins fengið eitt þúsund króna rekstrarstyrk fyrir ár- ið 1943 og væntanlegur væri ein- hver styrkur fyrir síðastliðið ár (1944). Enginn styrkur hefði hins vegar verið greiddur vegna stofn- kostnaðar. Ákveðið var að sækja um styrk, vegna skólabílsins, til fræðslumálastjórnar á þeim grund- velli að horfið hafi verið frá því að byggja heimavistarskóla, en í hans stað byggður heimangönguskóli sem hefði bifreið til afnota. Hrepp- FAXI 43

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.