Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 3

Faxi - 01.02.1990, Blaðsíða 3
Minningarorö um Einar Stefánsson flutt á fundi hjá Lionessuklúbbi Keflavíkur 13. febrúar 1990 Ágætu Lionessur! Eins og ykkur er kunnugt lést hér i Keflavík hinn 31. janúar sl., sá mað- ur sem við með sanni getum kallað Guðföður klúbbsins okkar — Einar Stefánsson. Ég vil leyfa mér að minnast hans hér örfáum orðum. Einar Stefánsson var fæddur í Keflavík 13. júlí 1920 og var því tæp- lega 70 ára er hann lést. Hann var sonur Stefáns Björnssonar og Sig- ríðar Jónínu Einarsdóttur og ólst upp hjá þeim í Reykjavík fyrstu árin, þar sem faðir hans stundaði þá verslunarstörf. Árið 1931 flyst fjöl- skyldan til Keflavíkur þar sem faðir hans fór fljótlega að starfa við Spari- sjóðinn og varð síðar sparisjóðs- stjóri. Á yngri árum stundaði Einar ýmis störf, svo sem trésmíðar, múrverk og flest önnur störf sem tengjast húsbyggingum, þar sem allt lét í höndum hans. Hann lauk síðan prófi frá Verslunarskóla íslands 1938 og sneri sér að verslunarstörf- um og starfaði m.a. um skeið í Þor- steinsbúð, sem var þar sem nú er Raftækjaverslunin Rafbær. Áhugi hans beindist síðar að öðrum svið- um og árið 1949 hóf hann nám í út- varpsvirkjun í Reykjavík, þar sem hann starfaði við iðn sína til ársins 1954, er hann flutti aftur til Keflavík- ur. Ári síðar stofnaði hann fyrirtæki sitt Radiovinnustofuna, sem hann starfrækti til dauðadags. Hinn 22. maí 1954 kvæntist Einar eftirlifandi konu sinni Kristjönu Jakobsdóttur. Þeim varð tveggja barna auðið og Einar gekk einnig dóttur Kristjönu í föðurstað. Einar var mikill félagsmálamaður. Hann gegndi trúnaðarstörfum fyrir fagfélag sitt, Útvarpsvirkjafélagið — síðar Meistarafélag rafeindavirkja, var t.d. formaður um skeið, var virk- ur félagi í Stangveiðifélagi Keflavík- ur, þar sem hann gegndi for- mennsku um tíma. Hæst bera þó starf hans fyrir Lionshreyfinguna, þar sem hann starfaði í áratugi. Hann kom þangað inn af krafti og áhuga og gegndi ýmsum störfum innan Lionsklúbbs Keflavíkur m.a. formennsku. Hann var einn af fyrstu svæðisstjórunum og vann þar gott brautryðjendastarf. Einar hafði mikla trú á að konur ættu erindi inn í Lionshreyfinguna. Hann var raunsær og gerði sér grein fyrir því að þar lægi vaxtabroddur hreyfingarinnar. Hann átti sjálfur fé- lagslynda konu og vissi að konur hafa sömu þörf og karlmenn fyrir að vinna að ákveðnum málefnum og er hægt að virkja þær til góðra hluta. Þegar svo Lionessuklúbbar komu til sögunnar sá hann mögu- leika á að koma þessu áhugamáli sínu í framkvæmd. Hann var sá fyrsti sem hreyfði málinu hér um slóðir — við dræmar undirtektir Lionsmanna lengi vel, enda Lions- hreyfingin búin að vera eitt þessara viðurkenndu karlavelda í marga áratugi. En Einar var fylgifm sér og gafst ekki upp. Honum tókst að tala karlana inn á hlutleysi í málinu og hefst í framhaldi af því handa við að ræða við konur Lionsmanna um stofnun Lionessuklúbbs. Allt frum- kvæði þar um kom frá honum. Hinn 28. maí 1982 verður síðan þessi hug- sjón hans að veruleika, með stofnun Lionessuklúbbs Keflavíkur. Hann sat fyrstu fundi klúbbsins — hinni nýbökuðu stjórn til trausts og halds. Hann var alltaf reiðubúinn til að leiðbeina — fann svör við öllum spurningum sem upp komu — ef hann hafði svörin ekki á reiðum höndum, þá bara las hann sér til. Einar var að ósk Lionessuklúbbs Keflavíkur skipaður tengiliður milli klúbbsins og föðurklúbbsins og gegndi því hlutverki til dauðadags. Hann varð síðan fyrsti Lionessu- fulltrúi í umdæmi 109 A og gegndi því embætti í tvö ár, þrátt fyrir að embætti á vegum Lions séu vana- lega til eins árs. Á þeim tíma fór hann í fjölda karlaklúbba, á svæðisfundi og sam- fundi og talaði fyrir stofnun Lion- essuklúbba. Þrátt fyrir mjög misjafnar og oft vægast sagt dræmar undirtektir karlanna átti hann þátt í að leggja grunn að stofnun — ekki aðeins okkar klúbbs — heldur einnig Lion- essuklúbbi Reykjavíkur, Lionessu- klúbbnum Eir í Reykjavík, Ýr í Kópa- vogi, Kaldá í Hafnarfirði og Eik í Garðabæ. Hann sleppti í raun aldrei hend- inni af okkar klúbbi — var tengiliður við föðurklúbbinn öll árin eins og komið hefur fram, studdi okkur ætíð með ráðum og dáð og sem fag- maður var hann ætíð boðinn og bú- inn að gera við spólur frá Blindra- bókasafninu sem aflaga fóru í hönd- um gamla fólksins — allt án endur- gjalds, nema þess þakklætis sem við berum í brjósti til hans. Eitt af síð- ustu verkum hans í okkar þágu var að tala máli Lionessa á samfundi fyrir skömmu. Nú er þessi hægláti, trausti hug- sjónamaður genginn til feðra sinna. Við Lionessur sem eigum honum svo margt gott upp að unna, kveðj- um hann með þökk og virðingu og vottum Kristjönu og börnum þeirra og öðrum ættingjum okkar dýpstu samúð. Þórdís Þormóðsdóttir. ^■■■esendum Faxa til fróöleiks birtum viö hér töflu er lýsir þeirri þróun sem átt hefur sér stað á Fiskmarkaði Suöurnesja síðustu tvö árin. í heild hefur meöalverö á markaöinum farið ört hækkandi og því áttu menn auðvitað von á. Það er annað sem kemur á óvart. Ýmsar fisktegundir sem áður voru ekki hátt skrifaðar eru nú seldar fyrir ágætis verð. Má þar nefna steinbít, keilu, löngu og karfa. Fiskmarkaðurinn hefur nú enn fært út kvíarnar og hefur opnað útibú í Sandgerði. Er það mál margra, að það þyrfti að koma upp fiskmörkuðum út um allt landið, m.a. til þess að fiskverkendur og útflytjendur gætu átt kost á að bjóða í þann fisk sem að landi kemur. Við látum framtíðina um að skera úr því, hvernig þessi mál þróast, en hér kemur taflan: VERÐÞRÓUN Á FISKMARKAÐI SUÐURNESJA FRÁ JANÚAR ’88—90 Jan.’88 Jan.’89 Breyting '88—89 Jan.’90 Breyting Breyting '89—90 '88—90 Þorskur 42.92 53.67 25.05% 75.29 40.28% 60.31% Ýsa 44.10 86.48 96.10% 99.14 14.64% 63.64% Ufsi 21.94 26.36 20.15% 38.49 46.02% 62.78% Karfi 19.85 28.09 41.51% 40.43 43.93% 73.26% Keila 12.60 16.84 33.65% 24.73 46.85% 72.03% Langa 30.17 25.32 -16.08% 52.401 06.95% 87.80% Steinbítur 17.70 23.89 34.97% 61.88 159.02% 184.93% Skarkoli 30.65 57.03 86.07% 64.34 12.82% 59.07% Lúða 89.60 258.22 188.19% 374.91 45.19% 110.49% Undirmálsfiskur 18.56 26.24 41.38% 51.54 96.42% 125.69% Meðaltal 32.81 60.21 50.10% 88.32 61.21% 90.00% FAXI 35

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.