Faxi - 01.02.1990, Qupperneq 16
SKÓLAR
Á
SUÐUR-
NESJUM
Skólanefndarformenn Brunnastaðaskóla, Vatnsleysuströnd
frá stofnun skólans 1872.
Séra Stefán Thorarensen
Kálfatjörn 1872-1896
Séra Árni Þorsteinsson
Kálfatjörn 1896—1910
Sigurjón J. Waage Sœmundur Klemensson Guðmundur Johannesson
Stóru-Vogum 1910-1916 Minni-Vogum 1916-1922 Flekkuvík 1922-1923
Sveinn Pálsson
Hábœ 1923-1926
Árni Kl. Hallgrímsson Símon Kristjánsson
Austurkoti 1926—1958 Neðri-Brunnast. 1958—1974
Jón Gudnason
Landakoti 1974—1985
Hreiðar Gudmundsson
Kirkjugerdi 1985—
öðrum trúnaðarstörfum í þágu
hreppsins. Má þar nefna störf hans í
skattanefnd og sem stöðvarstjóra
Pósts og síma, sat í hreppsnefnd, svo
eitthvað sé nefnt. Þá var hann mikill
áhugamaður um skógræktarmál.
Arni Klemens var kvæntur Mörtu
Finnsdóttur frá Hnúki á Skarðs-
strönd í Dalasýslu.
Árni andaðist árið 1965.
Eftirmóli
Hér að framan hefur verið rakin
hin merka saga skólahalds í Vatns-
leysustrandahreppi frá árinu 1972
og fram undir okkar daga. Það er
vonandi ekki á neinn hallað, þótt
því sé hér fram haldið, að miklu hafi
þeir áorkað sem á hverjum tíma
hafa setið í skólanefndum. Þetta á
ekki hvað síst við um formenn
nefndanna. Eins og svo víða annars
staðar voru það prestar byggðar-
lagsins sem áttu mestan þátt í að
koma skólastarfinu á legg. íbúar á
ströndinni áttu því láni að fagna að
hafa í upphafi sr. Stefán Thoraren-
sen og síðar sr. Árna Þorsteinsson
sem báðir voru prestar á Kálfatjörn.
Væri það verkefni út af fyrir sig að
minnast þeirra sérstaklega á sama
hátt og Árna Kl. Hallgrímssonar hér
að framan, en það verður nú a bíða
betri tíma. í stað þess birtum við hér
nöfn allra þeirra sem veitt hafa
skólanefndinni forystu fram á þenn-
an dag.
Skólstarfið í dag
í dag eru nemendur Stóru-Voga-
skóla alls í tíu bekkjardeildum.
Aldur þeirra er frá 6—15 ára. Byggð-
in á Ströndinni hefur búið við svipt-
ingar í seinni tíð og sést það best á
því, að árið 1971 voru nemendur
skólans aðeins 51.
Það er kennt í sex almennum
skólastofum og einni sérkennslu-
stofu. Sund og önnur íþróttakennsla
fer fram í íþróttamiðstöðinni í Njarð-
vík og er nemendum ekið þangað.
Skólastjóri er Bergsveinn Auðuns-
son og yfirkennari er Jón Ingi Bald-
vinsson. Alls eru kennarar í fullu
starfi átta talsins, en í hlutastarfi eru
þrír. Um húsvörslu sér Garðar And-
résson og Þórdís Símonardóttir sér
um alla ræstingu í skólanum.
Við skólann er starfandi foreldra-
félag og er núverandi formaður þess
Hildur Runólfsdóttir. Formaður
skólanefndar er Hreiðar Guð-
mundsson.
Ritstjóri Faxa vill nú þakka þær
ágætu móttökur og aðstoð er hann
hlaut við þessa samantekt. Við skilj-
um við Stóru-Vogaskóla með þeirri
ósk, að þar megi áfram dafna gott
og heilladrjúgt skólastarf.
Skelltu hvorki
skuld á hálku
eða myrkur.
Það ert ftú sem situr við stýrið.
IUMFERÐAR
RÁÐ
48 FAXI