Faxi - 01.02.1990, Page 21
eplum og kardemommum. Við ára-
mót 1959—60 var leikurinn sýndur
samtímis á öllum Norðurlöndunum.
Kardemommubær:
Hús og umhverfi
í upphafi bókar sinnar segir höf-
undur, að „Kardemommubær sé lít-
ill bær og svo langt í burtu, að þar
eru fáir kunnugir..(Bls. 5). Húsin
eru sérkennileg, þökin hafa skrýt-
inn halla og turn stendur í miðjum
bænum. Flest húsanna eru hvítkölk-
uð. Allt minnir þetta á hús í suður
Evrópu. Enda vill svo til að Karde-
mommubærinn var skrifaður eftir
ferð höfundarins til Suður-Ítalíu og
Sikileyjar. En þar er forneskjan mest
og húsin elst og hrörlegust á Ítalíu.
Engin hús í Kardemommubæ eru þó
hrörleg, nema hús ræningjanna,
sem stendur utan við bæinn.
Við turninn skrýtna er bæjarhlið-
ið. í gegnum það er farið inn á torg-
ið. Skammt þar frá stendur húsið
hennar Soffíu frænku. Ef við stöns-
um andartak við á þessu „torgi
mannlífsins" sjáum við margt fólk á
gangi fram og aftur. Allt er það klætt
í falleg og litrík föt. Það er glatt og
kátt. Þetta eru Kardemommar. Auð-
séð er að þeim þykir öllum vænt um
bæinn sinn.
Húsin hvítu standa við þröngar og
krókóttar götur. Á sumum húsum
eru svalir og Ijósker hanga á horn-
um og veggjum. Fagurt er um að lit-
ast því gróður er víða. Einkum
döðlupálmar og eplatré. Þar er
skemmtigarður. Asnar rölta fetið
eftir götunum klyfjaðir eplum, app-
elsínum, döðlum og kardemommu-
fræi. Þarna er talandi úlfaldi, fíll og
sporvagn. En bílar óþekktir.
Bæjarbúar eru sjálfum sér nógir
um flest. Bakarinn, pylsugerðar-
maðurinn og Berg kaupmaður sjá
fyrir því. Þar er dýrasali og rakari.
Síðast en ekki síst eru þar börn.
Kardemommar eru mjög söngvinn-
ir syngja við óiíklegustu tækifæri.
Alls konar hátíðahöld eru þeirra eft-
irlæti. Bæjarhljómsveitin starfar af
fullum krafti og kemur fram við
ólíklegustu tækifæri.
Persónur
En ef að er gáð, kemur í ljós, að
þar er við svipuð vandamál að
stríða og í öðrum bæjum. Karde-
mommubærinn er ekki fullkominn
þó ævintýri sé. Þar eru vandamál
hversdagsins.
Bænum stjórnar bæjarfógeti að
nafni Bastían. Heldur rögglítill að
því er sumum finnst. Enda kemur
strax fram að hann „vilji helst ekki
taka nokkurn mann fastann". (Bls.
5). Mannlýsingar eru hvorki langar
né flóknar í Kardemommubænum
og Bastían er best lýst með hans eig-
in orðum í söngnum hans:
FRAMHALD Á BLS. 62
VELDU
BETRl
KOSTINN
NONNI OG BUBBI
HRINGBRAUT 92
SÍMAR 11580-14188
FAXI 53