Faxi - 01.02.1990, Page 29
70 ára
BjörgK. Sigurðardóttir
kennari
Fyrir hönd Faxafélaga flyt ég
Björgu einlægar afmælisóskir.
Þeim óskum fylgja m.a. kærar
þakkir og Ijúfar minningar um hlað-
in borð kræsinga og lífleg skoðana-
skipti í kaffihléum Faxafunda að
Mánagötu 11.
Nú eru árin hennar Bjargar orðin
70, en með sanni má segja að hún
beri aldurinn einstaklega vel.
Sem fyrr hefur hún margt til mála
að leggja og því enn sem fyrr gott að
vera samstarfsmaður hennar og
eiga við hana skoðanaskipti um
starfið, lífið og tilveruna.
Ég stend í mikiili þakkarskuld við
þau Björgu og Ragnar fyrir svo mik-
ið og margt, því er mér nú á 70 ára
afmæli Bjargar einlægt þakklæti
efst í huga um leið og ég árna henni
og fjölskyldu hennar heilla á merk-
um tímamótum.
Kristján A. Jónsson.
Björg Sigurðardóttir kennari varð
70 ára þann 15. febrúar sl.
Björg er fædd í Reykjavík. Tíu ára
gömul fluttist hún með foreldrum
sínum og systkinum, sex að tölu, að
Asgarði í Gerðaherppi.
Foreldrar Bjargar voru hjónin Sig-
urður Kristjánsson, fæddur að Brim-
nesi við Seyðisfjörð, en uppalinn í
Meðallandi i Austur-Skaftafellssýslu
og Guðjónína Sæmundsdóttir, sem
ung kom að Vatnsnesi við Keflavík
og ólst þar upp hjá hjónunum Helgu
Vigfúsdóttur og Guðna Jónssyni,
bónda þar.
Björg Kristín, en svo heitir hún
fullu nafni, lauk kennaraprófi frá
Kennaraskóla íslands vorið 1940.
Næsta skólaár kenndi hún við
barnaskóla Gerðahrepps. Árið eftir
vann hún við barnaheimili í Reykja-
vík, þá við kennslu í Keflavík
1942—43 og Héraðsskólann í
Reykholti 1945-1946.
Þann 31. maí 1947 giftist Björg,
Ragnari Guðleifssyni, fyrsta heið-
ursborgara Keflavíkur. Hefur hún
staðfastlega búið fjölskyldu sinni
gott og fagurt heimili. Þar ríkir ætíð
sönn alúð og eindrægn og því ætíð
gott að koma og dvelja.
Um nokkurt árabil helgaði Björg
óskipt starfskrafta sína uppeldi
barna sinna, þeirra Sveinbjörns og
Sigrúnar og stjórn á risnumiklu
heimili. En á þessu tímabili gegndi
Ragnar m.a. oddvitastarfi og síðan
starfi bæjarstjóra, er Keflavík öðlað-
ist kaupstaðarréttindi árið 1949.
Hugur Bjargar hefur alla tíð
beinst til fræðslu og uppeldisstarfa
og í samræmi við það réði hún sig
árið 1954 til kennslustarfa að nýju
og nú við barnaskóla Keflavíkur,
Myllubakkaskóla, þar sem hún hef-
ur starfað óslitið síðan af stakri ósér-
hlífni og kostgæfni.
Björg er ákaflega nærgætin, skiln-
ingsrík og næm fyrir líðan og þörf-
um nemenda sinna. Þessir kostir
hennar koma sér einkar vel í þeirri
kennslu, sem hún hefur annast
mörg hin síðari árin í sex ára deild
skólans, sem er til húsa í gamla
skólahúsinu við Skólaveg.
Ávallt hefur Björg verið mjög bók-
hneigð og áhugasöm við að fylgjast
vel með nýjum stefnum og straum-
um á sviði kennslumála og í því
skyni sótt fjölmarga fræðslufundi og
námskeið bæði hér heima sem og í
Danmörku.
Mér verður oft hugsað til þess, og
lít þá í eigin barm, hversu mikils
virði það er ungu fólki, er það kem-
ur til starfa sem nýgræðingar, að
eiga á hinum nýja vinnustað að
mæta samstarfsfólki, sem hefur og
vill miðla, af gæsku og alúð, reynslu
sinni og hugmyndum starfinu við-
komandi. Þessa varð ég mjög svo
aðnjótandi er ég hóf ungur kennslu
við barnaskólann í Keflavík og ekki
þá hvað síst hjá þeim hjónum Björgu
og Ragnari, en þau hófu kennslufer-
il sinn við skólann samtímis og
kenndu þar bæði óslitið saman, þar
til Ragnar lét af störfum 70 ára að
aldri árið 1975.
Berðu ekki við
tímaleysi eða streitu
í umferðinni.
Þaö ert þú sem situr undir stýri.
yUMFERÐAR
RÁÐ
Sími 14930 — Hafnargötu 79
FAXI 61