Faxi - 01.05.1990, Blaðsíða 3
FJkJCl
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík.
Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 11114.
5. tölublað
50. árgangur
Blaðstjórn: Helgi Hólm ritstjóri, Kristján A. Jónsson aðstoðarritstjóri og
Vilhjálmur Þórhallsson.
Varamenn: Birgir Guðnason og Hjálmar Stefánsson.
Hönnun, setning og umbrot: Leturval sf.
Filmu- og plötugerð: Myndróf.
Prentun: Prentstofa G. Benediktssonar.
Þjóðhátíðardagurinn
17. júní
Um leið og blaðstjórn Faxa óskar lesendum blaðs-
ins gleðilegrar þjóðhátíðar, þágefst örlítiðtækifæri til
að fjalla lítilsháttar um þjóðhátíðardaginn, tilurð hans
og tilgang.
Arin 1989 og 1990 verða örugglega lengi í minnum
höfð. Um mest alla austanverða Evrópu hefur átt sér
stað bylting, bylting þóán verulegra blóðsúthellinga.
Hver þjóðin á fætur annarri hefur ákveðið að skipta
um stjórnarfar og fallið hefur verið frá hinu stranga og
ólýðræðislega flokksræði og upp teknir lýðræðislegir
stjórnhættir. í kjölfarið hafafylgt frjálsar kosningar, á
sumum stöðum þær fyrstu í nær hálfa öld. Á þjóðhá-
tíðardegi okkar hugsum við til þessara þjóða og ósk-
um þeim að vel megi takast að koma þessum um-
skiptum á.
Islendingar numu hérland á árunum 870-930. Er tal-
ið að landið hafi verið albyggt á þeim tíma. Þá var Al-
þingi stofnað á Þingvöllum og lög sett fyrir land og
lýð. Næstu þrjár aldirnar voru íslendingar sjálfstæð
þjóð. Landnámsmenn voru flestir frá Noregi og kon-
ungar Noregs renndu ávallt hýru auga til landsins. Fór
svo að lokum að íslendingargengu Noregskonungi á
hönd árið 1262 og hétu honum tilheyrandi skatt-
greiðslum. Hét Noregskonungur á móti ýmsum rétt-
indum íslendingum til handa. Reyndist þó æði erfitt
að ná fram hinum lofuðu réttindum. Er skemmst frá
því að segja, að landið var undir erlendum yfirráðum
allt til ársins 1944, að íslendingar lýstu yfir sjálfstæði
og rufu sambandið við Dani sem þá réðu landinu.
Enginn vafi er á því, að sú sjálfstæðisbarátta er Jón
Sigurðsson forseti og samherjar hans háðu á síðari
hluta 19. aldar lagði grunninn að endurnýjuðu sjálf-
stæði okkar. Það er því engin tilviljun, að afmælisdag-
ur Jóns var valinn sem þjóðhátíðardagur landsins.
Því er þetta tíundað hér, að nauðsynlegt er að
minna fólk á, hversu stutt er síðan þjóð okkar öðlaðist
sjálfstæði og hversu þýðingarmikið það er fyrir okkur
að minnast þessog standa vörð um sjálfetæði okkar
og tilverurétt. Gleðilega þjóðhátíð.
VALGEIRSBAKARÍ
Hólagötu 17, Njarövlk
20 ára
afmæli
Þann 28. júní n.k. eigum vid 20
ára starfsafmæli. I því tilefni
bjóðum við viðskiptavinum okkar
að þiggja kaffi og kökur þann
dag milli
kl. 15:00 og 17:00
Verið velkomin.
Valgeir og starfsfólkiö.
MUNIÐ
0RKU-
REIKNINGANA
Eindagi orkureikninga er
15. hvers mánaðar.
Látid orkureikninginn
hafa forgang
Hitaveita
Suðurnesja
FAXI 131