Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1990, Blaðsíða 14

Faxi - 01.05.1990, Blaðsíða 14
Við skoðum um 40 bíla á dag Spjallað við Kristófer Þorgrímsson hjá B ifre iðaskoð u n Islands hf anna, þar sem aftasti stafur núm- ersins segir til um það, í hvaða mánuði á að koma með bílinn til skoðunar." Það kom að lokum fram hjá Kristófer, að nú í júlí verður tekið í notkun viðbótarhúsnæði, þar sem hægt verður að skoða vöru- bifreiðir innanhúss. Þar verða einnig sett upp tæki til að prófa bremsur vörubílanna. Reyndar verða einnig innan tíðar sett upp slík prófunartæki fyrir fólksbif- reiðirnar. Með því verður öll að- staða til skoðunar orðin hin ágæt- asta. Við höfum spjallið ekki lengra að þessu sinni, ekki er rétt að tefja viðskiptavinina, sem eru jú flestir að flýta sér. Við getum ekki betur séð, en að öll afgreiðsla gangi vel og Ijúfmannlega fyrir sig og þann- ig á það líka að vera. HH Okkur datt í hug einn daginn að líta við hjá Bifreiðaskoðun Islands hf. því það er staður sem flestir verða að heimsækja oft á lífsleið- inni. Við litum við eftir hádegi fimmtudaginn 7. júní og eins og svo oft, þá virtist okkur nóg að gera. Þar voru við vinnu sína, þeir Kristófer Þorgrímsson, forstöðu- maður, og Jón Kristinsson, bif- reiðaeftirlitsmaður. Við gátum króað Kristófer af lítið augnablik á milli þess sem hann skoðaði bíla sem komu inn hver á fætur öðr- um. Við spurðum fyrst, hvenær Bif- reiðaskoðunin hefði tekið til starfa, en eins og flestum er kunn- ugt, þá er það fyrirtæki arftaki Bif- reiðaeftirlits ríkisins sem áður sá um allt bifreiðaeftirjit. „Bifreiðaskoðun Islands hf. tók til starfa um áramótin 1988 og 1989. Ég réði mig að fyrirtækinu um jólaleytið 1988 og leigði því jafnframt þetta húsnæði sem við erum í. Hér hafði ég áður um nokkurra ára skeið rekið bílaverk- stæði. Við höfðumsíðan lokað um tveggja vikna skeið og hér opnaði því afgreiðslan um miðjan janúar 1989.“ Afgreiðslan í Keflavík sér um að skoða bifreiðir á Suðurnesjum ásamt bifreiðum á Keflavíkurflug- velli og ails eru þetta um 6000 bif- reiðir. Að sögn Kristófers þá koma milli 30 og 40 bifreiðir til skoðun- ar á hverjum degi. Við spyrjum hann að því, í hvers konar ástandi bifreiðirnar séu yfirleitt, þegar komið er með þær til skoðunar. „Það má segja, að yfirleitt er ástand þeirra mjög gott. Að vísu eru einstaka bílar í slæmu ástandi, en þá er líka venulega komið með þá í lögreglufylgd." „Er fólk duglegt að koma á rétt- um tíma til skoðunar?" „Já, það er það Og þetta hefur batnað með tilkomu nýju númer- Kristinn Helgason, fyrrverandi fisksali, veit það manna best að góð umhirða er besta tryggingin fyrir góðri endingu bifreiðar. Hér eiga þeir kankvís orðaskipti saman Björn Marteinsson, smyrjari og Kristinn, sem er að láta huga að Morrisbifreið sinni — 0 95 — af 1970 árgerð

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.