Faxi - 01.05.1990, Blaðsíða 34
Barnaskólahúsið við Skólaveg. Hér var gagnfræðaskólinn til húsa á árunum 1954—1962, eimig var kennt í Sjálfstæðishúsinu.
FRAMHALD AF BLS. 147
stillt í hóf svo það kæmi ekki niður
á náminu.
Á fjórða starfsári skólans
1955—56 voru nemendur orðnir
175 og voru þá húsnæðisvand-
ræði farin að hrjá nemendur og
kennara verulega, en skólinn var
tvísetinn sem áður. Leikfimi inn-
anhúss var engin vegna húsnæð-
isskorts en þegar veður leyfði
fóru nemendur í útivistartíma
undir stjórn íþróttakennara, þó
féllu útivistartímar og félagsstarf-
semi niður á þessu skólaári fram
að jólum vegna mænuveikifarald-
urs, sem hér gekk. Á þessu ári
stofnuðu nemendur taflfélag enda
var mikill tafláhugi meðal þeirra.
Margt góðra gesta heimsótti
skólann á þessum fyrstu árum
skólans og flutti nemendum og
kennurum fróðleg erindi. Ber þar
einkum að nefna Kristmann Guð-
mundsson rithöfund, en hann
heimsótti skólann alloft fyrstu ár-
in og flutti nemendum erindi um
bókmenntir.
Á fimmta starfsári skólans
'56—57 eru nemendur rétt innan
við tvö hundruð og þar með rúm-
ar skólahúsið ekki lengur þann
fjölda. Verður því að leita í leigu-
húsnæði. Fengin var aðstaða í
Sjálfstæðishúsinu handan við
Skólaveginn. Þangað flyst kennsl-
an í fjórða bekk. Heldur þótti að-
búnaður þar slæmur og kvörtuðu
nemendur einkum undan kulda.
Því fékk þetta útibú frá skólanum
viðurnefnið Síberia. Oft var mikið
fjör í Síberíu þegar frímínútur
voru og kennarar höfðu farið yfir
í kennarastofuna í gamla skólan-
um.
Eins og fram hefur komið var
aðstaða til íþróttakennslu lítil sem
engin framan af, þar sem enginn
íþróttasalur var til staðar en aftur
á móti var sundaðstaða góð. Því
var sundáhugi ávallt mikill meðal
nemenda á þessum árum og voru
margir góðir sundmenn innan
skólans. Færðu þeir skólanum
mörg góð verðlaun frá skólasund-
mótum, sem þeir tóku þátt í.
Nokkur breyting varð á íþróttaað-
stöðunni þegar lokið var við bygg-
ingu íþróttahúss við barnaskól-
ann sjötta starfsári skólans. Fékk
skólinn afnot af húsinu fyrir sína
nemendur og hófust þá í fyrsta
sinn reglulegir tíma í íþróttum.
Allmargir skiptinemar á vegum
þjóðkirkjunnar stunduðu nám við
skólann. Voru þeir sérlega fljótir
að ná tökum á íslenskunni og að-
laga sig að íslenskum staðháttum.
Skólaárið 1961—62 kom hingað
fyrsti skiptineminn frá Bandaríkj-
unum. Sú hét Margaret Anne We-
idler og settist hún í fjórða bekk.
Var hún mjög duglegur nemandi
og um vorið varð hún hæst á
gagnfræðaprófi með 8.61 í aðal-
einkunn.
Sama sagan endurtók sig á
næsta skólaári þá kom önnur
bandarísk stúlka sem skiptinemi
og hreppti hún verðlaun fyrir
hæstu einkunn í bókfærslu, vélrit-
un og stærðfræði. Sú hét
Charlyne Louise Pitsenbarger.
Fleiri skiptinemar komu til skól-
ans og stóðu þeir sig allir með
mestu prýði.
Skólaárið 1962—63 var merkis-
SUÐURNESJAMENN!
VID ERUM
Á SVÆÐINU
ÖLL DEKKJA-
ÞJÓNUSTA
NÝOGSÓLUÐ
DEKKAFÖLLUM
STÆRÐUM
OG GERÐUM
SÓIMJVG'?
Fitjabraut 12, Njarðvik, simi 11399
162 FAXI