Faxi - 01.05.1990, Síða 16
kvæmda á árunum 1947 til 1953.
Hér í Keflavík reyndist þessi að-
lögunartími alltof stuttur, því hér
var svo komið í húsnæðismálum
skólanna að algjört ófremdar-
ástand ríkti. Barnaskólinn var þá
enn í gamla skólahúsinu, sem
byggt hafði verið 1911 af miklum
stórhug, en þá voru nemendur
skólans aðeins um 40. Arið 1946
eru nemendur skólans hinsvegar
orðnir yfir 200 og má af því sjá,
hversu gífurleg vandræði hafa þá
skapast í húsnæðismálum skól-
ans. Unglingaskóli Keflavíkur
hafði um langt skeið verið rekinn
sem sjálfstæður skóli í leiguhús-
næði en 1947 er hann sameinaður
barnaskólanum og varð þar til
húsa.
Eftirfarandi tilkynning frá
fræðsluráði Keflavíkur gefin út 8.
maí 1949 lýsir vel því ófremdar-
ástandi sem hér hafði skapast í
skólastarfi vegna húsnæðisvand-
ræða:
Síðastliðið vor ákvað skóla-
nefnd, að hin nýju fræðslulög
skuli koma til framkvæmda hér í
Keflavík.
„Aðalmunurinn á þeim og hin-
um eldri fræðslulögum er sá, að
Rögnvaldur Sæmundsson var
fyrsti skólastjóri Gagnfræðaskóla
Keflavíkur. Atti hann því mestan
þátt í að þróa staif skólans og vann
hann þar mikið og heilladrjúgt
starf.
börn eru skólaskyld til 15 ára ald-
urs í stað 14 ára. Þar af leiðandi
eru börn, sem fædd eru 1935
skólaskyld næsta skólaár.
I nýju fræðslulögunum er gert
ráð fyrir að unglinga- og gagn-
fræðaskólum sé skipt í bóknáms-
deild og verknámsdeild. En vegna
húsnæðisskorts, getum við ekki
komið því við að hafa verknáms-
deild við skólann hér á næsta
skólaári. Þar sem svo stendur á er
heimilt að veita undanþágu frá
skólaskyldu síðasta árið þeim
börnum, sem vilja aðeins vera í
verknámsdeild, þó með því skil-
yrði, að foreldrar sjái svo um, að
þau vinni hagnýt störf það skóla-
ár. Hafi beiðni ekki borist skóla-
nefndinni fyrir þann tíma, verður
undanþága ekki veitt.
Einnig skal það tilkynnt skóla-
nefnd fyrir áðurnefndan dag, ef
unglingurinn verður í skóla utan
Keflavíkur'
Þegar fræðsluráðið sendi frá sér
þessa tilkynningu var ekki farið
að huga alvarlega að stofnun
gagnfræðaskóla hér, enda í ekkert
húsnæði að venda með slíka
stofnun. Nýja barnaskólahúsið
var rétt aðeins að koma upp úr
moldinni og gekk afar hægt með
framkvæmdirnar. Þá var gamla
barnaskólahúsið löngu orðið allt-
of lítið fyrir starfsemi skólans,
þurfti jafnvel að takmarka lög-
boðna kennslu að einhverju leyti.
Nýju fræðslulögin settu að sjálf-
sögðu mikla pressu á að nýju
skólabyggingunni yrði hraðað,
enda var barnaskólanum ætlað
að taka við unglingadeildinni og
þar með sinna lágmarkskröfum
nýju laganna þ.e. að unglingarnir
gætu lokið unglingaprófi í heima-
byggð.
Það var sumarið 1948 sem byrj-
Gagnfrædaskóli Keflavíkur var stcfnaður haustið 1952. Fyrstu árin starfaði hann í hinri nýju skólabyggingu
við Sólvallagötu, sem reyndar varfyrst tekin í notkun 1952.
SKÓLAR
Á
SUÐUR-
NESJUM
að var að grafa fyrir hinni nýju
skólabyggingu við Sólvallagötu.
Þrátt fyrir endurteknar áskoranir
fræðsluráðs til bæjarstjórnar um
að hraða byggingunni, miðaði
framkvæmdum afar hægt eins og
þegar hefur verið getið. Það var
ekki fyrr en árið 1952, nánar til
tekið 17. febrúar, að nýja skóla-
húsið var vígt.
Þrátt fyrir, að þetta nýja skóla-
hús hafi verið hið glæsilegasta og
að sjálfsögðu miklu stærra en
gamla skólahúsið, var langt frá því
að sama stórhugar hafi gætt varð-
andi byggingu þessa húss og hins
eldra, enda liðu ekki mörg ár þar
til fór að þrengja að starfsemi
skólans á ný.
Þegar bygging barnaskólans
var fullgerð og tilbúin til notkun-
ar, fannst mönnum orðið tíma-
bært að ræða stofnun gagnfræða-
skóla hér í bæ, enda stóð nú
gamla skólahúsið autt og þar
mætti hefja starfið með einhverj-
um breytingum á húsinu. Það var
þó vitað mál, að það hús var á all-
an hátt afar óhentugt sem skóla-
húsnæði gagnfræðaskóla, sem
átti lögum samkvæmt að bjóða
upp á bæði bóknám og verknám.
En þótt menn sæju þessa ann-
marka var í rauninni ekki um aðra
möguleika að ræða. Bæjarfélagið
var í örum vexti á þessum árum
og því í mörg horn að líta. Sjúkra-
húsið var í byggingu og fjöldi ann-
arra verkefna beið, sem ljúka
þurfti sem fyrst. Því var önnur ný
skólabygging bæjarfélaginu ein-
faldlega of stór biti að kyngja.En
eitthvað varð að gera og það á
sem skemmstum tíma, nýju
fræðslulögin áttu að vera komin
til framkvæmda á því herrans ári
1953. Það var því ekki langur tími
til stefnu.
Á fundi bæjarstjórnar 1. apríl
1952 var eftirfarandi tillaga frá
fræðsluráði Keflavíkur samþykkt:
Fundur í fræðsluráði Keflavíkur
12. mars 1952 ítrekar fyrri sam-
þykktir sínar um stofnun gagn-
fræðaskóla í Keflavík á þessu
sumri, svo hægt verði að hefja þar
kennslu á næstkomandi hausti.
Ennfremur leggur ráðið til, að
gagnfræðaskólinn verði til húsa í
gamla barnaskólahúsinu og skor-
ar á bæjarstjórnina að láta fara
fram nauðsynlegar endurbætur
og lagfæringar, svo viðunandi sé,
og hafist verði handa um það, svo
fljótt sem auðið er og sjái bæjar-
stjórnin um framkvæmdir á því.
144 FAXI