Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.05.1990, Qupperneq 31

Faxi - 01.05.1990, Qupperneq 31
Þaö er mjög gott aö halda ráöstefnur í Keflavík segir Ólafur Erlingsson, formaður Meistarafélags byggingamanna á Suðurnesjum. Dagana 4. og 5. maí s.l. hélt Meistara- og verktakasamband byggingamanna (MVB) aðalfund sinn í Keflavík. Aðild að MVB eiga félög byggingarmeistara um allt land, ásamt verktakafyrirtækjum og einstökum byggingarmeistur- um. Aðalfundinn sóttu fulltrúar frá eftirtöldum félögum innan sambandsins: Meistarafélag húsasmiða, Mál- arameistarafélag Reykjavíkur, Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi, Meistarafélag bygg- ingamanna á Norðurlandi vestra, Múrarameistarafélag Reykjavíkur, Meistarafélag Suðurlands, Meist- arafélag byggingamanna í Vest- mannaeyjum, Múrarameistarafé- lag Suðurnesja, Meistarafélag iðn- aðarmanna í Hafnarfirði, Mei- starfélag byggingamanna á Suð- urnesjum, Dverghamarar sf., Ár- mannsfell hf., Píparinn hf., Byggðaverk hf. og Vernd hf. Aðalfundurinn var haldinn í sal Karlakórs Keflavíkur og hófst hann á því, að fráfarandi formað- ur, Gunnar S. Björnsson, flutti skýrslu formanns. Ræddi hann al- mennt um efnahagsástandið í dag og bað menn gæta þess, aö þótt bati væri í sjónmáli, þá yrðu menn að fara að öllu með gát. Þá ræddi hann einnig um aðlögun iðnaðar- manna að þeim breytingum sem við blasa á Evrópumarkaði á næstu árum. Framkvæmdastjóri MVB, Sverr- ir Arngrímsson, skýrði frá því helsta úr starfi hins liðna árs. Ver- ið væri að þróa tölvuforrit sem nota mætti við allar mælingarstof- ur og væri verið að vinna að sam- komulagi þar að lútandi. Þá hefði verið komið á aðstoð við félags- menn við undirbúning á tilboð- um. Þá væri það nýjung, að á ár- inu voru í fyrsta sinn gefin út svo- nefnd meistaraskírteini. Væri þetta gert til að fólk gæti betur treyst því, að það væri ekki að fá fúskara í vinnu. Viðgerðardeild MVB hefur vaxið að mun og liggja fyrir nokkrar nýjar umsóknir um inngöngu. Gefin hefur verið út handbók með verklýsingum fyrir viðgerðarefni. Afkoma félagsins var góð á árinu og var hagnaður um ein og hálf milljón króna. Voru reikningar sambandsins sam- þykktir samhljóða ásamt fram- lagðri fjárhagsáætlun. Nýr formaður samtakanna var kjörinn Ingvar Á. Guðmundsson. Hann ávarpaði fundarmenn og kvað það ætlun sína sem for- manns að leita stöðugt fram á við. Nauðsynlegt væri að efla samtök- in enn meir. Það væri og mikið hagsmunamál, að iðnmeistarar reyni sem mest að framleiða full- unna vöru, jafnframt því sem gæðamál verði að vera ofarlega á verkefnalistanum. Á síðari degi aðalfundarins voru flutt erindi um málefni sam- einaðs Evrópumarkaðs. Hið fyrra flutti Björn Friðfinnsson, aðstoð- armaður utanríkisráðherra, en hið síðara flutti Þórleifur Jónsson, framkvæmdastjóri Landssam- bands iðnaðarmanna. Björn Friðfinnsson fjallaði um DAGSKRÁ í NJARÐVÍK 17. JÚNÍ1990 Kl. 11:15 17. júní-hlaup. Kl. 14:00. Þjóðhátíðarmessa í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Sr. Þorvaldur Karl Helgason predikar. Formaður þjóðhátíðarneíndar, Ingólfur Bárðarson, setur hátíðina í kirkjunni áður en guðsþjónustan hefst. Kl. 14:45. Skrúðganga frá kirkju að hátíðarsvæði við Stapa. SKEMMTIDAGSKRÁ: Fjölbreytt dagpkrá í umsjá og flutningi heima- manna, skátafélagsins Víkverja, UMFN, o.fl. Verðlaunaafhending vegna 17. júní-hlaupsins, Tivolí, starfsíþróttir, ,,þrautabraut” og óvæntar uppákomur ýmis konar. Einar Júlíusson söngvari og Ólöf, dóttir hans, skemmta. Flugmódelsýning á íþróttavellinum, fallhlífastökk og ,,sadgætisregn“. Fjölskyldudansleikur í Stapa: Kl. 20:00-23:30. HÁTÍÐARSVÆÐIÐ VIÐ STAPA: Kl. 15:10. Lúðrasveit Tónlistarskólans leikur. Kynnir verður Lára Guðmundsdóttir, kennari. Þjóðhátíðarræða. Hafdís Garðarsdóttir flytur. Ávarp fjallkonu. Kl. 15:30. Kvenfélag Njarðvíkur sér um kaffiveitingar (hlaðborð) í Stapa frá kl. 15:30. Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar leikur fyrir dansi og verður með leiki og grín fyrir börn á öllum aldri. Einnig flytja þrjár ungar stúlkur skemmtiatriði og dansfíokkur sýnir dansa. Þjóðhátíðardansleikur í Stapa: Kl. 24:00-02:00. Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar leikur fyrir dansi. FAXI 159

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.