Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1990, Síða 35

Faxi - 01.05.1990, Síða 35
SKÓLAR Á SUÐUR- NESJUM ár í sögu skólans. Segja má að þá hafi skólinn þegar slitið barns- skónum enda var hann nú um það bil að fylla fyrsta tuginn. Gamla skólahúsið var nú kvatt og flutt var í nýtt húsnæði, sem hafði ver- ið sérhannað fyrir starfsemi skól- ans. Nokkur dráttur varð á skóla- setningu um haustið þar sem enn var unnið við frágang hinnar nýju byggingar sem var við Sunnu- braut. Það var svo 13. október sem skólinn var settur í Keflavík- urkirkju eins og áður hafði verið. Þótt margt hafi enn verið ógert, því hér var aðeins um fyrsta áfanga byggingarinnar að ræða, voru viðbrigðin vissulega mikil fyrir nemendur og kennara. Kennslustofum hafði fjölgað um helming og urðu nú alls átta. Nemendur fengu góðan sal, sem bætti mjög aðstöðuna varðandi allt samkomuhald í skólanum. Að- staða kennara var samt enn sem áður fremur bágborin. Þeir komu sér fyrir til að byrja með í einni af kennslustofunum og hugguðu sig við að kennarastofa væri í aug- sýn, átti aðeins eftir að innrétta hana. Skólastjóri fékk nú sína fyrstu skrifstofu frá því skólinn tók til starfa, en hann varð samt að deila henni með skólaritaran- um.Louise W. Steindal, sem ráðin hafði verið að skólanum. Sam- kvæmt teikningum af húsinu átti að vera skólabókasafn í þeim hluta hússins, sem stjórnun skól- ans flutti nú í. Þegar þetta nýja skólahús er tekið í notkun voru nemendur rétt um 300, sem skipt- ust í 11 bekkjardeildir. Fastir kenn- arar voru 9 auk skólastjóra, þá voru þrír kennarar í hálfu starfi og þrír stundakennarar. Við skólaslit vorið 1963 voru í fyrsta sinn mættir tíu ára gagn- fræðingar skólans. Færðu þeir skólanum árnaðaróskir og gáfu honum vandaða skuggamynda- vél. Slíkar heimsóknir gagnfræð- inga urðu síðan fastur liður við skólaslit á næstu árum og hafa þeir fært skólanum margar góðar og nytsamlegar gjafir á liðnum ár- um. Skólaárið 1969—70 er fjöldi nemenda kominn í 578 þar af voru 300 nemendur í skyldunámi. Þetta er fyrsta árið sem 5. bekkur er starfræktur við skólann, sem er framhaldsdeild á viðskipta-, tækni-, hjúkrunar- og uppeldis- deild. Almennar kennslustofur eru 11 auk eðlisfræðisstofu og handavinnustofu drengja og stúlkna. Bekkjardeildir eru nú 22 en almennar kennslustofur 11, auk þriggja sérkennslustofa. Á þessu ári er tekin í notkun ný- byggð álma, svonefnd norður- álma og eru í henni þrjár almenn- ar kennslustofur, handavinnu- stofa stúlkna, eðlisfræðistofa og skólaeldhús. Kennarar voru alls 29, 21 fastakennari og 8 stunda- kennarar. Þrengsli í skólanum eru gífurleg og bekkjardeildir mjög fjölmennar eins og áður. í skólaslitarræðu sinni vorið 1972 segir skólastjórinn, Rögn- valdur J. Sæmundsson um hús- næðismál skólans m.a.: „Húsnæð- isvandræðin hafa frá fyrstu tíð verið Þrándur í götu í öllu starfi skólans. Þau hafa komið í veg fyr- ir, að skólinn gæti gegnt hlutverki sínu sem fullkominn gagnfræða- skóli, sem gæfi nemendum kost á ýmsum möguleikum til náms, svo að þeir væru hæfari til að mæta vandamálum lífsins í starfi eða áframhaldandi námi. Vegna ófull- nægjandi húsnæðis hefur hann orðið að binda sig við þaö allra nauðsynlegasta og varla það. Það er ekki hægt að taka upp valfrelsi námsgreina, sem þó væri æski- legt, og því síður verknámsdeild, sem er nauðsynlegt að hafa, þeg- ar varla er hægt að kenna svo vel sé handavinnu í bóknámsdeild- um, eins og nú er.” FRAMHALD í NÆSTA BLAÐI Verðlauna- hús með íslenskri gæðamálningu frá DROPANUM Steinakrýl Steintex Eigendur fegutstu húsa í Keflavík 1989 völdu íslenska gæðamálningu á hús sín úr Dropanum. PdfopiAn Hafnargötu 90 - Sími 14790 - Umboð fyrir Málning hf. á Suðurnesjum - FAXI 163

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.