Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1990, Blaðsíða 26

Faxi - 01.09.1990, Blaðsíða 26
HITAVEITA SUÐURNESJA Útboð „132 kV Suðurnesjalína Insulators" Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í einangrunar- skálar í 109 háspennumöstur. Útboðsgögn verða afhent hjá Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg 36, 260 Njarðvík og á verkfræðistofunni Línuhönnun hf., Suðurlandsbraut 4a, 108 Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 18. september á skrifstofutíma gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila til Hitaveitu Suðurnesja fyrir opnun- artíma tilboða 1. nóvember nk. kl. 11, og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Hitaveita Suðurnesja SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. FRAMHALD AF BLS. 179 geta hér að Bragi Ásgeirsson list- málari gaf skólanum verk eftir sig í tilefni sýningarinnar. Athygli vakti hve nemendur urðu meðvitaðir um hömlur þær sem fatlaðir búa við í bænum og kom m.a. í Ijós að húsnæði Gagn- fræðaskólans var ekki byggt og hannað með tilliti til fatlaðra nem- enda. Árið '82 var svo tekin upp starfs- kynning í því formi að nemendur 9. bekkjar unnu í vikutíma hjá hinum ýmsu fyrirtækjum og stofnunum bæði í Reykjavík og á Reykjanesskaganum. Nemendur unnu sem almennir starfsmenn á vinnustöðunum og reyndu að gera sér sem besta grein fyrir þeim störfum sem þar voru unnin með tilliti til síns eigin náms- og starfsvals síðar meir. Hátt á sjöunda tug fyrirtækja tóku við nemendum skólans á hverju ári en sökum fjölda nem- enda og samdráttar í atvinnulífi varð að leggja þennan þátt niður veturinn 1988. Starfsdeild var svo stofnuð við skólann haustið 1986 og var hún þá sú eina starfandi utan Reykja- víkur. Markmiðið með henni var að brúa biliö milli atvinnulífsins og grunnskólans með stóraukinni kynningu atvinnulífs hér á svæð- inu. Nemendur starfsdeildar fara í viku hverri fyrir áramót í heim- sóknir á vinnustaði og kynna sér þar allt viðkomandi starfinu s.s. SKÓLAR Á SUÐUR- NESJUM menntunarkröfur, vinnuaðstæð- ur, laun, vinnutíma o.fl. Eftir áramót vinna þeir svo hálf- an daginn síðdegis á þeim vinnu- stfiðum sem við þeim geta tekið og reyna með því að kynnast starfinu til hlítar. I skólanum leggja nemendur svo stund á hefðbundnar námsgeinar og reyna að gera sér grein íyrir þeim möguleikum sem nám og at- vinnulíf í Keflavík bjóða upp á. Foreldrasamstarf Á fyrstu árum skólans var ekk- ert ákveðið form á samskiptum skóla og foreldra þó voru umsagn- ir og einkunnir nemenda sendar heim foreldrum til upplýsingar. Foreldradagur í þeirri mynd sem nú tíðkast var fyrst haldinn haustið 1964 þegar foreldrar gátu komið í skólann og rætt persónu- lega við kennara síns barns. Þátt- taka foreldra var mjög misjöfn á þessum árum allt frá því að 30 for- eldrar, rúmlega 500 nemenda mættu upp í 90—95% mætingu eins og tíðkast í dag. Foreldra- og kennarafélag var svo stofnað 6. des. 1982 og er markmið þess að auka tengsl milli skóla og foreldra og þátttöku þeirra í skólastarfseminni. Félagið hefur á undanförnum árum staðið fyrir ýmsum fyrir- lestrum, kynningarfundum og umræðufundum er snerta málefni unglinga. Tíu ára gagnfræðingar færa skólanum gjöf. Hér afhenda þeir Jón Jóhanns- son og Geirmundur Kristinsson Rögnvaldi Sæmundssyni skólastjóra nýmóð- ins kennslutæki — myndvörpu. 190 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.