Faxi - 01.09.1990, Blaðsíða 27
Tómstundastarf árið 1972. Á þeim
árum var mikið og gott starf á vegum
Æskulýðsráðs og tóku nemendur
Gagnfræðaskólans drjúgan þátt í
því. Ljósmyndaklúbbur var starf-
ræktur að Klapparstíg 7 og var Hjör-
dís Árnadóttir, núverandi formaður
íþróttaráðs, leiðbeinandi í klúbbn-
um. Á myndinni skoðar Hjördís
árangurinn hjá Jóni Guðjónssyni, en
Árni Margeirsson fylgist með af
miklum áhuga.
FRAMHALD í NÆSTA BLAÐI
Fundir þessir hafa verið mjög
þarfir og fróðlegir en því miður
alls ekki eins vel sóttir eins og
ástæða er til.
Foreldrar í foreldrafélaginu hafa
einnig staðið fyrir kaffiveitingum
á árshátíð skólans frá því vorið ’83
með miklum myndarbrag og eiga
þakkir skilið fyrir það.
Þá hafa foreldrar einnig verið
fengnir til aðstoðar við klúbbstarf-
semi og mætti það vera í miklu
meiri mæli því eins og allir vita
byggist gott og farsælt skólastarf á
nánu samstarfi foreldra og kenn-
ara. Sá þáttur verður aldrei ofmet-
inn.
Skólaslit fóru sum árin fram í Keflavíkurkirkju. Þessi my nd er frá skóiaslitum
árið 1972. Hér er Haukur Hafsteinsson, lögfræðingur og þjálfari Grindvík-
inga í knattspyrnu, að taka á móti prófskírteini sínu úr hendi skólastjóra,
Rögnvaldar Sæmundssonar. Ljósmy ndir með þcssari grein hafa tekið: Heimir
Stigsson og Randi Træen.
Tímarit
Sóhabúi Hef/aúíkut*
OAGLEGA I LEIÐINNI -
Verklýðs- og sjómanna-
félag Keflavíkur
og nágrennis
Verkakvennafélag
Keflavíkur og Njarðvíkur
Skrifstofur félagsins eru að Hafnargötu 80
Síminn er 15777.
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 9—17.
Föstudaga kl. 9—3.
FAXI 191