Faxi - 01.09.2006, Síða 12
óri Jónssyni formanni Lj ósanæturnefiular'o£lagði fyrir hann
Faxi náði tali af Steinþ
nokkrar spurningar í tilefni af Ljósanótt 2QÓ^^Linnig^látuni yið fylgjafmeð nokkrar
myndirtsem Arnar Fells tóká^síðustu LjósairóítiflMgHBflP^' -rj yj
Sástu rtokkurn tíma fyrir þér ad Ljósanótt
slíkur stórviðburður sem raun liefur
orðið á?
Nei, og langt frá því. Það er einmitt
þess vegna sem við bæjarbúar gleðjumst
yfir því á hverju ári hve vel hefur til tek-
ist og fögnum sívaxandi áhuga á hátíðinni,
bæði hjá okkur sem hér búum og þeim
sem heimsækja okkur á Ljósanótt. Og þó
gestir hátíðarinnar séu eins margir og raun
ber vitni þá eru það líka aðrir þættir sem
skipta máli þegar talað er um stórviðburð
sbr. fjöldi atriða, glæsilegir viðburðir og
sú mikla menningin sem við nú upplifum í
heila fjóra daga.
Hvaða spor finnst þér helst að Ljósanótt-
in Itafi markað ( bcejarlífið?
Það er engin spurning í mínum huga að
sú mikla samstaða sem varð til og vilji
íbúa Reykjanesbæjar til að leggja sig fram
stendur uppúr þegar maður horfir til baka.
Þetta er hátíð fjölskyldu og menningar
þar sem allir geta fundið eitthvað sér til
skemmtunar og fróðleiks. Sömuleiðis þær
miklu framkvæmdir og umhverfisbreyt-
ingar sem að hluta eiga sér stað fyrir
hverja Ljósanótt, bæði hjá einstaklingum,
fyrirtækjum og sveitaifélaginu. Þetta er að
skila sér með sífellt fallegri bæ. Ég full-
yrði að ekkert bæjarfélag geti státað af svo
mikilum framförum á jafn skömmum tfma
og Reykjanesbær.
12 FAXI
Okkur á Faxa finnst mjög áhugayerð ein
nýung sem verður á þessari Ijósanótt, þ.e.
árgangagangan. Getur þtí útskýrt það fyr-
irbceri nánarfyrir lesendum blaðsins.
Það er nú orðið ljóst að Ljósanóttin er há-
tíð endurfunda en auk fjölskylduboða um
allan bæ hafa gamlir vinir og skólafélagar
verið að hittast í bænum yfir helgina og
fyrir marga stendur það uppúr öðrum upp-
ákomum. 1 ljósi þess fjölda sem nú sækir
hátíðina heim er Ijóst að ekki er mögulegt
að rekast á alla þá sem gaman væri að
hitta. Því hefur verið ákveðið að á laugar-
deginum klukkan 13:00 er fólk úr hverjum
árgangi fyrir sig hvatt til að koma saman
við Hafnargötuna þannig að árgangur '56
hittist við Hafnargötu 56 o.s.frv. Þar getur
fólk spjallað saman í hálftíma eða svo og
e.t.v. mælt sér mót t.d. síðar um daginn.
Síðan mun árgangur '90 leiða skrúð-
göngu niður Hafnargötuna og taka með sér
hvern árganginn af öðrum niður að aðal-
sviði Ljósanætur. Þannig mun skrúðgang-
an fá einstakan blæ þar sem aldur ræður
niðurröðun göngumanna. Við viljum ítreka
að allir bæjarbúar og gestir eru velkomnir
og er það von okkar að þessi uppákoma
verði til framtíðar að skemmtilegri viðbót
á Ljósanótt . Til þess þurfa þó sem flestir
að vera með og hvetja vini, kunningja og
gesti til að taka þátt.
HH.