Faxi - 01.09.2006, Síða 18
1
Æl JPjWKHk. * rjtÉnf **-r| • tZ. Ah ' ' ••1,'*^'' jjp? y, y *.■ * 42^1' I
Samtíminn í
Á samtíminn meö öllum sínum fjöldatram-
leiddu hlutum erindi á byggöasöfn landsins?
I þessu erindi eru rætur min jasafna skoðaðar
og innra starf þeirra kannað.
Árið 1862 skrifaði Sigurður Guðmundsson,
menningarfrömuður og faðir Þjóðminjasafns ís-
lands, hugvekju til Islendinga. Þar vakti hann at-
hygli á að fágætar og verðmætar minjar hyrfu úr
landi til erlendra safna og safnara auk þess sem
skeytingarleysi landans hefði skaðað og jafnvel
eyðilagt merkar minjar Skrif hans urðu til þess
að Þjóðminjasafn íslands var stofnað árið 1863.
Skjót viðbrögð yfirvalda við ákalli Sigurðar sýna
hversu mikilvægar þessar minjar voru álitnar.
Áratugum seinna þegar þjóðin fagnaði lýðveld-
istökunni árið 1944 færði þjóðin sjálfri sér að
gjöf húsnæði Þjóðminjasafns íslands við Suð-
urgötu. Af sama tilefni stofnaði Ungmennafélag
Keflavíkur, Byggðasafn Keflavíkur. En áform
um að stotna byggðasafn hafði fylgt félaginu frá
upphafi þess.
Vegferð frá gullinni fortíð
I hita sjálfstæðisbaráttunnar reyndist þekk-
ingin á sögunni eitt sterkasta vopnið. Sagan og
tungan urðu síðan homsteinar hins nýja sam-
félags. I orðræðu sjálfstæðisbaráttunnar mynd-
hverfðist sagan í eins konar vegferð þjóðarinnar;
frá gullinni fortíð, í gegnum myrka dali, í átt til
ljóssins. Minjar þessarar vegferðar verða þannig
eins og vörður sem marka leiðina langt aftur í
aldir. Þótt fjarlægðin sé mikil er leiðin skýr. Sag-
an verður nteð þessum hætti þekktur veruleiki,
byggða
við vitum um hvað hún fjallar, einungis þarf að
fylla í eyðurnar, en stóra myndin er komin. Þessi
sterka mynd átti lfka sinn þátt í að fleyta þjóð-
inni úr fátæktarfjötrum fortíðar inn í velmegun
nútímans.
Við sjáum að í sögunni felst mikil orka sem get-
ur haft mikil áhrif. En þrátt fyrir gagnsemina þá
má ekki gleyma því að hin sterka mynd er fyrst
og tremst söguleg staðreynd um sjálfstæðisbar-
áttuna. Við getum auðvitað skoðað margvíslega
aðra þætti sögunnar sem ekki falla undir þessa
mynd. Við getum endurskoðað, endurmetið og
uppgötvað nýja hluti um söguna.
Hvert getur hlutverk
byggðasafna verið?
Það eru margir sem álíta að í hugtakinu
18 FAXI