Faxi - 01.09.2006, Síða 13
Ljóssins englar
Líður þú um loftin blá,
og leitar heimahögum frá,
þá munu Ijóssins englarávallt fylgja þér.
Siglir þú um heimsins höf
og hljótir mikla reynslu að gjöf,
þá bíða Ijóssins englar hvar sem er.
Þó farir þú um fjarlæg lönd,
og farir langt frá þinni heimaströnd,
þá munu Ijóssins englar ávallt fylgja þér
I huga þínum ljósin lýsa,
landið mun úr hafi rísa
englarnir þeir eru með þér,
þú átt að vita að þeir munu veginn lýsa,
vita að þeir munu veginn lýsa.
Ljóssins englar lýsa þér,
og leiðin heim svo greiðfær er
nú munu Ijóssins englarávallt fylgja þér.
Þó farir þú um fjarlæg lönd,
og farir langt frá þinni heimaströnd,
þá munu ljóssins englar, ávallt fylgja þér.
Já hvert sent er.
Lag: Magnús Kjartansson
Texti: Kristján Hreinsson
Söngur: Rut Reginalds
Gamli bœrinn minn
Hverg' í heiminum
er ég sáttari
en í bænum sem fóstraði mig.
Ennþá virðist hann samur við sig.
Alla tíð hafð'ann áhrif á mig.
Sumir rífast þar
en allir þrífast þar
þó að stundum sé skýjað og kalt.
Lánið þarf ekki að vera svo valt
þó að ekki sé kosið á allt.
Niður götuna geng ég,
verð var við svo margt
- og rakarinn raular sitt lag.
Yfir gangstétt fer kona svo dreymin á svip.
Hún á stefnumót síðar í dag.
Þarn' eru nýjungar,
gamlir töffarar.
Sumir hlæja, slá öll'upp í grín
meðan augum er skotrað til mín.
Er ég - í þeirra augum tómt grín?
Götuna geng ég og nýt þessa alls.
Fyrr en varir allt breytir urn brag.
Túnið fyllist af fólki sem svífur í vals
Svo syngj'allir saman eitt lag.
Gantli bærinn minn.
Gamli bærinn minn.
Öll syngjum þér saman eitt lag.
Ennþá virðist þú samur við þig, gamli bærinn
sem fóstraði rnig.
La la lala læ,
La la lala læ...
Öll við syngjum þér saman eitt lag.
Hérer hamingjan ríkjandi' í dag
og við syngjum þér saman eitt lag.
Hér er hamingjan ríkjand' í dag
og við syngjum þér saman eitt lag.
Lag: Gunnar Þórðarsbn
Texli: Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson
Söngur: Hljómar
2005
SBK hópterðir / bllaleiga / ferðaskrifstofa • Grófin 2-4 • 230 Keflavík • Reykjanesbær • Sími 420 6000 • Fax 420 6009 • sbk@sbk.is
hópferðir • bílaleiga • ferðaskrifstofa
FAXI 13