Borgin - 01.01.1933, Síða 11

Borgin - 01.01.1933, Síða 11
manna í þrældóm og fluttu með sjer til norðurstrandar Afríku, og þótt margir þeirra yrðu síð- ar leystir út, er engum vafa undirorpið, að ýmsir liafa orð- ið eftir og borið beinin suður í Alsír og Marokkó. Má því ætla, að enn finnist þar meðal íbú- anna nokkrir kynblendingar, frændur vorir, afkomendur þessara herteknu manna. Enn má nefna dæmi frá söguöld- inni, sem sje útflutning lands- manna til Grænlands, eftir að þeir böfðu fundið það fyrstir inanna, en árangurinn af þeim útflutningi varð skammvinnur, svo sem kunnugt er. Að þessu fráskildu er ekki um neinn verulegan útflutning að ræða af hálfu íslendinga, fyr en eftir 1850. Saga þess út- flutnings, er þá bófst, skal ekki rakin lijer, enda hefur áður mikið verið um það efni rætt og ritað. Þó mætti miklu við það bæta, ef bjer væri tæki- færi til að fara ýtarlega út í þá sálma, og ýmsir þættir út- flutningssögunnar bafa hingað til legið í jiagnargildi. Árið 1851 komu hingað til lands islenskir mormónar frá Kaupmannaböfn og tóku að prjedika bjer kenningar sínar. Mormónum þessum varð eitt- hvað ágengt. Snerust nokkrir til fylgis við þá og fluttust með þeim af landi burt árið 1855 og settust að í Spanish Fork í Utab-fylki í Bandaríkj unum, en þar voru þá aðalbæki- stöðvar sjertrúarflokks þessa. Árið 1857 fóru fleiri — rúm- lega tíu — og settust allir að í beimkynnum mormóna. Á þetta er minst af því að það varð byrjunin að miklum og stöðugum fólksflutningum til Ameríku á næstu áratugum. Skiftust menn um þau mál þegar í öndverðu í tvo flokka. Lögðust sumir að vonum fast á móti öllum útflutningi, og töldu af því hljótast landauðn, en engu viðunanlegra hlutskifti þeirra, er út fluttu, í binum nýju heimkynnum en hjer á hinu „kalda og brjóstruga Fróni“. Aðrir tóku málstað innflutn- ingsagentanna amerísku og trúðu bverju orði, sem þeir sögðu um yfirburði Ameríku og vellíðan manna þar. Þessir formælendur útflutningsins skiftust aftur í tvo flokka um það, bvort heppilegra væri að flytja til Norður-Ameríku eða Suður-Ameriku. Leit í fyrstu út fyrir að Suður-Ameríka (Brasi- lia) ætlaði að verða blutskarp- ari, en ekki leið á löngu áður en allur útflutningur bjeðan af landi beindist til Norður-Ame- riku. Þangað fluttust margar þúsundir manna, er liafa frá byrjun haldið saman og haft samband við ættjörðina, svo að menn bjer heima bafa æfinlega getað fylgst með bögum þeirra og starfi. öðru máli er að gegna með þá fáu, sem fóru suður á 9

x

Borgin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Borgin
https://timarit.is/publication/691

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.