Borgin - 01.01.1933, Page 15

Borgin - 01.01.1933, Page 15
flokkur manna eindregið á móti öllum fólksflutningum til ann- ara landa, og raddir frá honum ljetu til sin lieyra opinberlega, þar sem útþrá og sjálfsbjarg- arviðleitni útflytjendanna er kölluð „meðfæddur órói og flakkaranáttúra“. Og þegar aðrir eins menn og Benedikt Gröndal sendu frá sjer aðvörunarorð í nafni föðurlandsástar, var ekki nema eðlilegt að margir yrðu afhuga öllu ferðalagi. önnur meginorsökin var, að laust eftir 1870 fjelck Brasilia skæðan keppinaut, þar sem voru Bandaríkin og Kanada. Hefur áður verið minst á þá fyrstu, sem fóru hjeðan af landi til þess hluta Vesturheims. Það voru að- eins fáeinar hræður. En nú komu fjölmargir útsendarar og „agentar“ frá Ameriku og prje- dikuðu nýjan boðskap fyrir landsmönnum. I þeirra augum var Brasilia ekki Ameríka, held- ur skrælingjaland álika og Kongó eða Patagónía, einhvers- slaðar langt fyrir sunnan alla menningu; Ameríka sjálf, þ. e. Bandaríkin og Kanada, væri hinsvegar einskonar „E1 Dor- ado“, þar sem ekkert þyrfti fyr- iv lífinu að liafa og allir gætu orðið miljónamæringar. Við hliðina á slíkri paradís varð líl- ið úr íslandi og framtíðarmögu- leikum þess, að þeirra dómi. Auðvitað var margt satt í því, sem þeir sögðu, en brosleg virð- ast manni nú ummæli eins og þessi, sem einn „agentinn‘ ljet frá sjer fara í einni auglýsinga- greininni sinni: „I Ameríku er meira mann- frelsi, jafnrjetti, mentun og auðsæld en í nokkru öðru landi .... en ísland er eitt af hinum aumustu, ef ekki aumast allra þeira landa, sem siðaðir menn l>yggja“. (Fróði I, hls. 261). 1 lið með þessum amerísku sendimönnum slógust ýmsir málsmetandi menn íslenskir, ekki jafnan af þvi, að þeir væru ineðmæltir útflutningi, heldur þótti þeim af tvennu illu miklu meira glapræði að stofna til Brasilíuferða. Meðal þeirra manna var Eirikur meistari Magnússon í Cambridge, sem að sjálfsögðu dró taum enskumæl- andi landa og enskrar menning- ar gagnvart hinum portugalska „skríl“ í Brasilíu. Ritaði hann grein i Þjóðólf (25. ár), þar sem han rjeðist með offorsi miklu á fyrirhugaða Brasilíu- för nokkurra Islendinga, telur það svipað fyrirhyggjuleysi og að gana út í opinn dauðann, og færir máli sínu til sönnunar nokkur átakanleg dæmi, auðsjá- anlega færð í stilinn „ad hoc“ af livatamönnum innflutnings- ins til Bandaríkjanna. Vill hann hreint og beint, eins og liann kemst að orði, að yfirvöldin „hanni mönnum þessa för með liarðri hendi. Slíkt er öldungis nauðsynlegt, ef þessir Brasilíu- farar ekki liafa það vit fyrir 13

x

Borgin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Borgin
https://timarit.is/publication/691

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.