Borgin - 01.01.1933, Síða 17

Borgin - 01.01.1933, Síða 17
vel, ef rjett er á haldið, sögðu þeir. Þessar fortölur höfðu sín áhrif, og svo hitt, að frá Vest- ur-íslendinguni bárust fljótt misjafnar sögur um líðan þeirra vestra, og sumar svo ömurlegar, að sliks voru fá eða engin dæmi hjer á landi. Fýsti nú sárfáa að komast vestur og tók þannig smám saman fyrir l'ólksstraum- inn þangað. En nú vikur sögunni aftur að Brasilíuförunum. Frásagnir þeirra, sem bárust mönnum hjer, stinga í stúf við frásagnir annara Vesturheimsfara, að því leyti að þær eru meira sam- hljóða um, að þeir búi yfirleitt við viðunanleg kjör og sjeu sæmilega ánægðir. Er það þeim mun eftirtektarverðara, sem það var skiljanlega langtum erfið- ara fyrir svo fáa og fákunnandi útlendinga að brjótast áfram í framandi landi, heldur en ef þeir hefðu skift þúsundum eins og landar þeirra í Norður-Ame- ríku. Fyrsti Brasilíufarinn. Það virðist svo sem fyrsti ís- lendingurinn, er settist að í Brasilíu, hafi vcrið Kristján nokkur Guðmundsson ísfeld. Ekki hefi jeg getað sjeð með vissu, hvenær liann muni hafa farið af Iandi burt, en sjálfsagt liefur það verið um það bil, sem útflutningsfjelag þeirra Ein- ars í Nesi var stofnað (18(52 —’3). Þá fóru þeir fyrstu, en sneru allir aftur, nema einn. Það mun liafa verið Iíristján ssi. Til er brjef frá honum til foreldra hans á Islandi, dagsett G. júní 18G5 í Rio de Janeiro. Þar segir liann ferðasögu sína frá því að hann fór frá Kaup- mannahöfn. En hvað lcngi hann Iiefur verið búinn að dvelja þar, verður ekki sjeð. Laugardags- kvöldið 14. febrúar 1863 fór hann með gufuvagni (þ. e. járn- braut) frá Kaupmannahöfn til Korsör og svo þaðan áfram með gufuskipi til Kiel. Síðan fór hann til Hamhorgar og dvaldi þar í viku. Bar þar margt fjTÍr augu hans, sem liann þurfti að gefa sjer tíma til að undrast og dásl að. Þaðan tók hann sjer fari með kaupskipi til New- castle og hitti svo vel á, er þang- að kom, að þá var brúðkaups- dagur prinsins í Englandi (Ját- varðs síðar konungs) og kon- ungsdóttur frá Danmörku (Alexöndru). Var þar mikið um dýrðir i tilefni af þessu, og liverjum þeim manni, er mæla kunni á danska tungu var veitt að eta og drekka þennan dag, það er liann vildi, og kölluðu Englendingar hann bróður sinn — segir i brjefinu frá New- castle. Sigldi Kristján á sama 'cipi til Málaga og höfðu þeir sleinkol meðferðis þangað, en hlóðu það aftur með vini og rú- sinum, og nú var förinni heitið til „fyrirheitna landsins“, Brasi- 15

x

Borgin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Borgin
https://timarit.is/publication/691

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.