Borgin - 01.01.1933, Page 55
Ósýnileg stjórn —
Það hlýtur að vera kynlegt að sjá bifreið fara leiðar sinnar
eftir götunni, farþegalausa og án þess að nokkur sitji við stýrið.
En þetta átti sjer stað nýlega á Fimta stræti í New York og þó fólki
í stórborgum nútímans komi fæst á óvart, þá námu menn þó ó-
sjálfrátt staðar í þetta skifti, til að sjá hvernig bílnum reiddi af.
Og fyrst í stað gekk ferðalagið ágætlega. Billinn fór í gang, heml-
aði og beygði fram hjá öðrum bilum á nákvæmlega sama bátt og
ef æfður bílstjóri hefði setið við stýrið. En aðeins fyrst i stað. -—
Það sem þarna fór fram var tilraun með nýja uppgötvun,
bifreiðina, sem stjórnað er þráðlaust per radio. Að illa fór að lok-
um kom ekki til af neinu öðru en því, að þeim, sem firðstjórnina
liafði á bendi, fataðist. Uppgötvunin sjálf stóðst raunina ágætlega.
Þetta bendir til þess að vel megi fara svo, áður en langt um líður
að maður geti setið lieima hjá sjer og sent bilinn sinn mannlausann
út í bæ eftir kunningja sínum. Út af fyrir sig get jeg vel imyndað
mjer að ýmsum þætti ekki óskemtileg tilbugsun að losna á þennan
hátt við bílstjórana, eða, að minsta kosti að losna við að sjá þá.
En að nokkurn langi til að aka í bíl, sem stjórnað er úr fjarlægð,
fæ jeg ekki skilið, því sjeu sýnilegir bílstjórar vangæfir þá eru hin-
ir ósýnilegu það ekki síður. Og jeg get ekki sjeð að það sje t. d.
hættumeira að aka í bíl með fullum bilstjóra, sem setur við stýrið,
heldur en í hinum, sem stjórnað er af fullum bílstjóra, sem drekkur
heima lijá sjer!
Annars verður því ekki neitað, að það væri tilkomumikil
sjón, að sjá raðir af mannlausuni bílum þjóta um göturnar,
hvern og einn á sinn ákvörðunarstað. Og jeg gæti hugsað mjer að
þetta fyrirkomulag væri mjög að skapi ungum elskendum, sem
kynnu því vel að geta ekið spölkorn út úr bænum og ráðið sínum
ráðum — undir fjögur augu.
En er því ekki líkt farið með okkur mennina eins og með
þennan bil á Fimta stræti? Guð einn veit livort við erum ekki, bver
um sig, lítill, undarlega gerður vagn, sem ekið er gegnum lífið og
stjórnað er af ósýnilegum ökumanni, ýmist góðum eða slæmum.
Sitji maður t. d. á veitingasal og borfi á dansandi fólk, mennina,
sem snúast í hringiðu á gólfinu, framandi í breyfingum sínum og
augnaráði, hvort finst manni þá ekki líkast því, sem þeir sjeu vjel-
ar, er knúðar sjeu áfram af ósýnilegu valdi? Og fæstir mannanna
53
i .