Borgin - 01.01.1933, Síða 56
hafa sjálfir stjórn sína á hendi. Það eru ekki þeir, sem sitja við
stýrið, þeim er stjórnað af ástríðum og þrám, dutlungum og geð-
þótta, sem þeir hafa ekki vald yfir. Og enginn veit livert ferð manns-
ins er heitið frekar en mannlausu lnfreiðarinnar á Fimta stræti. —
Trúarbrögðin kenna okkur — á nútíma máli að alheim-
inum sje stjórnað af ósýnilegum ökumanni með einskonar radio.
Og hingað til liefir ferðalagið gengið vel og án þess að stórkostleg
umferðaslys hafi átt sjer stað. Hversu lengi hefur jörðin ekki ekið
með óleyfilegum liraða um hina fjölförnu braut hvolfsins? Og nú
erum við svo vön orðin þessu ferðalagi, að það grýpur okkur eng-
inn ótti þó að engin okkar viti hvaðan við lögðum upp eða hvert
við förum. — En nú hafa vísindin komið með þá getgátu að við
sjeum að færast í áttina til stjörnumerkisins Herkúlesar!
Vissulega eru þeir menn til, sem tala um það að rjettara væri
að „kasta sjer af“ áður! En flestir farþeganna eru hinir rólegustu,
sumir hagræða sjer í sæti sínu og halla sjer aftur á hak með yfir-
lætissvip, rjett eins og þeir ættu vagninn sjálfir og gætu ráðið því
hvert hann færi.
Og þó myndu þessir menn, ef þeir sæju mannlausum bíl ekið
fram hjá sjer, hrópa það sama sem fólkið á Fimta stræti:
— Kraftaverk! — Hvilik fásinna!
t* ■ _______________________
Til kaupenda
Fyrir sjerstök óhöpp varð
þetta hefti síðbúnara en ætlast
var til upphaflega. Hinsvegar
verður næsta hefti, sem nú er í
prentun, borið út til kaupenda
innan skamms og upp frá þvi
verður 1. dagur hvers mánaðar
fastur útkomudagur ritsins. —
Þennan mánuð allan fá nýir
kaupendur að Borginni 1. heftið
ókeypis meðan upplagið hrekk-
ur til.
----x--
Borginni hafa borist allmarg-
ráðningar á verðlaunaþrautinni
í 1. hefti, og verður árangur-
inn hirtur í næsta hefti. — Þess
skal getið að Ijósmyndastofa
Oskars sá um forsiðumyndirn-
ar, sem stafirnir voru gerðir úr.
----x----
Borgina vantar ennþá duglega
og áhugasama útsölumenn víða
úti um land. Vjer gefum yður í
sölulaun 20% eða m. ö. o. fimta
hvert eintak sem þjer seljið.
Byrjið áskrifendasöfnun strax í
dag og sannfærist um að þetta
getur gefið yður góðar aukatekj-
ur. Síðar munum vjer auglýsa
liverjir sjeu umboðsmenn okk-
ar úti um land svo væntanlegir
kaupendur viti Iivert þeim er
hagkvæmast að snúa sjer með
pantanir á ritinu.
54