Borgin - 01.01.1933, Page 58
var það í þvi leikriti, sem jeg
vann minn fyrsta listræna sig-
ur eða hafði „kúnstnerisk Gen-
nembrud“ eins og það er kallað
á erlendu máli. Jeg ljek þar
nefnilega líkið, sem er mjög
vandasamt hlutverk fyrir lif-
andi menn. — En vegna þess
að samsvarandi leikkrafta vant-
aði í önnur hlutverkin í Ieikn-
um, þá var horfið að því að
sýna í þess stað „Æfintýrið“
enda ekki illa til fundið þar eð
segja má að listamannsbraut
mín hafi á sjer talsverðan æf-
intýrablæ.
Hvert verður hlutverk yð-
ar i Æfintýrinu?
Þar leik jeg sendiherra,
sem höfundurinn hafði upphaf-
lega ætlað sjer að hafa með í
leiknum en tók í burt á síð-
ustu stundu, þar eð sú persóna
myndi hafa gefið leikritinu alt
annan hlæ. Vegna þessara kenja
í höfundinum sjest jeg alls ekki
á leiksviðinu fyr en eftir sýn-
inguna og eins kanske á milli
þátta.
Hvar eruð þjer fæddur? spurð
um vjer.
— Af einhverjum misgán-
ingi er jeg fæddur hjer á landi,
því hefði jeg hugsað út í að fæð-
ast dálítið fyr þá myndi jeg og
Björnson báðir hafa átt sama
fæðingarbæinn í Noregi, því fað-
ir minn stundaði þar iðn sína
skömmu áður en jeg varð til.
Hefði ekki farið illa á þessu þar
eð við Björnson eigum báðir
• ■"Ihr O-'lli.'O 0-H..0 -*»..• o •*%.•
Alíslenskt fyrirtæki.
\ Sjóvðtryggíngar.
Brunatryggingar. j
Fljótust
skaðabðtagreiðsla
i
0
o
o
* o
t
o
#
o
*
o
o
*
o
o
o
56