Morgunn - 01.12.1968, Qupperneq 69
Biskup á miðilsfundi í sjónvarpi
☆
1 blaðinu Toronto Daily Star segir frá því, að það hafi
þótt allmiklum tíðindum sæta, áð í september 1967 gerðist
það í borginni Toronto, að biskupinn James A. Pike kom
fram í sjónvarpinu og hélt þar miðilsfund með nafnkennd-
asta miðli Bandaríkjanna, Arthur Ford, sem margir kannast
við hér meðal annars vegna þess, að fyrir fáum árum var
gefin út á íslenzku ævisaga hans, sem nefndist. Undrið mesta.
Arthur Ford er guðfræðingur að menntun og var um skeið
prestur, en hvarf frá því starfi, er hann tók að helga sig al-
gjörlega miðilsstarfseminni. En nú hefur hann, þótt tekinn
sé allmikið að eldast, gengið á ný í þjónustu kirkjunnar. Það.
jók því enn á áhuga þeirra, sem á þennan miðilsfund horfðu
í sjónvarpinu, að auk þess að sjá þarna biskup í forsæti, var
sjálfur miðillinn kunnur prestur.
Ennfremur vakti það mikla athygli, að um sama leyti
var í bænum Joiiet skammt frá Chicago haldið þing Sam-
bands forgöngumanna Sálarrannsókna (Spiritual Frontiers
Fellowship), og sóttu það 50 prestar og 500 leikmenn. Þessi
félagsskapur var stofnaður fyrir 13 árum, og eru félagar
hans taldir um 3000. í honum eru prestar úr svo að segja
öllum kirkjudeildum þar vestra, einnig prestar kaþólsku
kirkjunnar. Megintilgangur þessarar stofnunar er sálræn
vakning innan hinna óiíku kirkjudeilda.
Stofnandi þessa sambands var séra Arthur Ford, og hefur
hann starfað þar síðan af miklum áhuga og krafti. Hann var
þó ekki fyrsti forseti þess, heldur var það prestur Metho-
distasafnaðar að nafni Paul Lambourne Higgins.
Um þennan félagsskap og megin tilgang hans og tildrög
að stofnun hans, segir séra Arthur Ford: ,,Við ákváðum að