Morgunn - 01.12.1968, Side 71
MORGUNN
149
og þeir telja vera í fullu samræmi við anda og kenningar
Krists. Boðskapur kirkjunnar eigi ekki að vera aðeins göm-
ul guðfi’æði og úrelt kenning, heldur eigi hann að fá sinn
styrk í síendurteknum lifandi sönnunum anda og kraftar.
8. V.
Frá starfi félagsins
Þar sem I. hefti Morguns var fyrir nokkru komið í prent-
un, þegar siðasti aðalfundur S.R.F.I. var haldinn í maílok s.
1., var ekki unnt að segja frá starfsemi félagsins á umliðnu
ári né heldur að birta reikninga þess fyrir árið 1967. Þvi eru
þeir prentaðir í lok þessa heftis.
Samkvæmt skýrslu félagsstjórnarinnar var starfsemin að
ýmsu ieyti nokki’u fjölbreyttari en árið áður. Almennir fé-
lagsfundir voru að vísu aðeins þrír, en auk þess hélt Haf-
steinn Björnsson miðill tvo skyggnilýsingarfundi á vegum
félagsins og voru þeir mjög vel sóttir. Munu hafa setið þá á
7. hundrað manns.
Ennfremur kom hingað í boði félagsins brezki miðillinn
Horace Hambling, er einnig var hér árið áður. Hélt hann
mjög marga fundi á vegum félagsins, þar á meðal lækninga-
fundi, er þóttu bera merkiiegan árangur. Verður ef til vill
unnt að skýra nánar frá því starfi hans síðar. Alls munu
hafa sótt fundi hans um 1000 manns.
Fjárhagui' félagsins var góður og batnandi. Tekjuafgang-
ur á rekstrarreikningi varð ríflega 179 þúsund krónur, og
mun aldrei áður hafa orðið svo mikili. Eign félagsins í árs-
loks 1967 var sem næst kr. 1.177.000,00, og er það um kr.
180.000,00 meira en árið áður.
Stjórn félagsins skipa nú þessir menn:
Guðmundur Einarsson, verkfræðingur, formaður.
Guðmundur Jörundsson, útgerðarmaður, ritari.