Morgunn - 01.12.1968, Page 75
MORGUNN
153
til umhugsunar og veitt þeim nokkurn fróðleik um það, sem
ekki er síður nauðsynlegt að festa hugann við en dægurþras,
síld og peninga, og þá sérstaklega þegar engin síld veiðist og
peningarnir orðnir verðlausir. En snúum okkur nú að bók-
unum.
Haraldur Níelsson
stríðsmaður eilífðarvissunuar
1868—1968.
Þetta er bók, sem ég hygg að engan sviki, sem hana kaup-
ir og les. Hún er gefin út af Sálarrannsóknafélagi Islands í
minningu þess, að liðin eru 100 ár frá fæðingu þessa stór-
brotna gáfumanns, sem af eldlegum áhuga, mælsku og anda-
gift vakti í senn storma og hrifning í samtíð sinni. Jafnframt
var hann einn af fyrstu brautryðjendum sálarrannsóknanna
og spíritismans hér á landi og tendraði elda djarfra hug-
sjóna, bjartsýni og trúar i hjörtum þúsundanna.
Séra Benjamín Kristjánsson hefur séð um útgáfu bókar-
innar, valið að miklu leyti efni hennar, skipað því niður, rit-
að formála og minningarorð og ýmislegt fleira. Þetta er veg-
ieg bók, 300 siður í stóru broti, prentuð á vandaðan pappír
°g prýdd mörgum myndum. Hún er ekki ævisaga í venju-
legum skilningi þess orðs, heldur hefur hún að geyma mik-
inn fjölda ritgerða mætra manna um prófessor Harald, þar
sem fjallað er um einstaka þætti í störfum hans, lýst við-
horfi hans til lífsins, trúarskoðunum hans, vísinda- og
kennslustörfum, svo nokkuð sé nefnt. Enn fremur er þar
oiargt stuttra minningargreina um hann og um persónuleg-
ar kynningar við hann og um þann kraft og þau áhrif, sem
frá honum stafaði, er ritað hafa bæði samkennarar hans í
Guðfræðideild Háskólans, nemendur hans þar og fleiri. Þar
eru og nokkur erfiljóð, svo og kafli úr ræðu, sem vinur hans
°g samherji, Einar H. Kvaran skáld, flutti við útför hans.
Að lokum eru nokkur sýnishorn úr ritum hans og bréfum.
Hér er ekki unnt í stuttu máli að gera efni þessarar ágætu
hókar viðhlítandi skil. Auk séra Benjamíns Kristjánssonar,