Morgunn - 01.06.1985, Page 12
færi, sjón, heyrn, ilman, bragð og tilfinning. Það er að
vísu að koma æ betur í ljós, að þessi skynfæri eru harla
ófullkomin. Við skynjum ekki með þessum tækjum nema
sumt af ljósbylgjum þeim og hljóðbylgjum, sem við nú
vitum að eru til. Við skynjum heldur ekki hlutina sjálfa,
heldur aðeins áhrifin frá þeim. Og margt skynjum við
bæði á ófullkominn hátt og beinlínis rangt. Að því höfum
við komizt með ýmsum hjálpartækjum, sem við höfum
fundið upp. Eigi að síður eru þessi ófullkomnu skynfæri
okkar dýrmæt hjálp í daglegu lífi.
Þvi hefur löngum verið trúað, og margir trúa því statt og
stöðugt enn, að ekki sé unnt að skynja neitt nema eftir
hinum venjulegu leiðum skynfæranna. Ekkert sé að marka
nema það, sem menn geti séð og heyrt eða þreifað á. Samt
sem áður er það nú svo, að frá elztu tímum og fram á þenn-
an dag hafa verið til menn, sem fullyrða, að þeir hafi orðið
eins og annars áskynja, án þess að sú vitneskja hafi til
þeirra borizt í gegnum hin venjulegu og viðurkenndu skyn-
færi. Þessar skynjanir hafa einu nafni verið nefndar sál-
ræn eða dulræn fyrirbrigði. Þau eru mjög fjölbreytilegra
tegunda og einnig mjög algeng. Það mun vandfundinn sá
maður, sem kominn er fi’am yfir miðjan aldur, sem ekki
telur sig hafa orðið einhvers varan af þessu tagi. Skal nú
í örstuttu máli drepið á helztu tegundir þessara fyrirbæra.
1. Skyggni eða ófreskisgáfa. Fjöldi manna er skyggn,
sem kallað er. Þeir sjá eitt og annað, sem aðrir ekki verða
varir við, þótt þeir standi fast hjá þeim. Þeir sjá verur eða
svipi, sem ýmist bregður fyrir, eða þeir geta séð þá alllengi
í senn. Þeir lýsa þessum verum greinilega, svo aðrir þekkja
af lýsingunni að þetta er fólk, sem löngu er dáið, en þeir
kannast mætavel við. Sumir virðast vera í venjulegu vöku-
ástandi, þegar þessar sýnir ber fyrir þá. Aðrir, og þá eink-
um hinir svonefndu miðlar, eru í ómeðvitandi eða hálf-
meðvitandi ástandi á meðan þeir eru að lýsa framliðnu
fólki. Þeir segja til um nöfn þess, heyra það jafnvel tala
og flytja fundargestum frá því ýmis skilaboð, segja frá
10
MORGUNN