Morgunn


Morgunn - 01.06.1985, Side 15

Morgunn - 01.06.1985, Side 15
7. Hreyfifyrirfœri (Telekinesis). Þessi fyrirbæri eins og einnig líkamningafyrirbæri og raunar nokkur fleiri, eru að því leyti ólík ESP-fyrirbærum, að menn skynja þau með skynfærunum eins og hverja aðra hluti, og horfa á þau margir í senn og skynja þau samtímis og á sama veg. Það dulræna við þessi fyrirbæri er það, að þau virðast ekki gerast í samræmi við þau lögmál, sem við þekkjum eða skiljum. Venjulegir hlutir taka að hreyfast og færast úr stað án þess að nokkur sýnileg hönd snerti við þeim eða nokkrir þeir kraftar verki á þá, sem okkur eru kunnir. Fyrirbæri þessarar tegunda eru algeng í sambandi við suma miðla og hef ég fengið tækifæri til þess þess að sjá þau gerast á miðilsfundum hvað eftir annað. Stundum byi’ja þessar hreyfingar hluta skyndilega i einstökum húsum eða heimilum og haldast þar um lengri eða skemmri tíma. Sem dæmi um slíkt hér á landi má nefna undrin á Hvammi í Þistilfirði 1913 og atburðina á Saurum á Skaga nú fyrir skemmstu. Oft virðist slíkur ókyrrleiki standa í sambandi við einhvern af heimilisfólkinu og hverfa um leið og hann víkur þaðan burtu, enda þótt öruggt sé, að hann sé á eng- an hátt viljandi valdur að því, sem gerðist. 8. LÁkamningafyrirbœri (Materialisation) gerast aðal- lega í sambandi við miðla og þó ekki nema með tiltölulega fáum þeirra. Þegar slíkur miðill er fallinn í miðilssvefn, tekur hvítleitt efni að streyma út frá höfði hans og eink- um úr eyrum, nefi og munni. Þetta efni tekur síðan á sig mannsgervi og stundum svo skýrt, að vel má greina eðli- legan hörundslit og jafnvel hár og skegg. Þessar verur, sem venjulega eru hjúpaðar hvítum slæðum, svífa um meðal fundargesta, stundum fleiri en ein í senn. Hefur marg- oft tekizt að ná af þeim ljósmyndum, og ýmsir hafa fengið að þreifa á þeim með varúð. Sjnritismi skilgreindur. Ég hef talið óhjákvæmilegt að drepa hér lauslega á helztu tegundir dulrænna fyrirbæra vegna þess, að spíri- MORGUNN 13
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.