Morgunn - 01.06.1985, Blaðsíða 30
til forna og síðar í kabbalafræðum. Hún var við líði með-
al kristinna mana til forna og er að vakna aftur að eitt-
hverju ráði nú á okkar tímum. Að Jesú hafi vitað þetta er
augljóst af þeirri fullyrðingu hans, að Jóhannes skírari
hafi verið Elía endurborinn. (Matteus 17:10—13). Origen,
einn lærðasti fræðari hinnar kristnu kirkju lýsir því að
,,hver sál kemur inn í þennan heim efld af sigrum eða bug-
uð af ósigrum sinna fyrri lífa“. Upphaflegar kenningar
hinnar kristnu kirkju og Gnostíkanna urðu um síðir fórna-
lömb misskilning og rangtúlkanna. Árið 533, á 2. klerka-
þingi í Konstantinópel var sú yfirlýsing gefin út að hver
sá sem leggja myndi kenningunni um endurholdgun lið
yrði bannfærður. Þar með var kenningunni úthýst úr
fræðum kristinar kirkju. En þó svo að henni hafi verið
sleppt úr fræðum kirkjunnar, þá hefur henni verið hald-
ið á lofti af einstaklingum sem kjark hafa haft til að láta
sannfæringu sína í ijósi. Á meðal síðari tíma fylgjenda
endurholdgunarkenningarinnar má nefna Emerson, Huxley,
Goethe, Shelley, Schopenhauer, Whitter, Whitman, Brown-
ing og Tennyson.
Lífið er skóli fyrir sálir. En barn gengur ekki í skóla
aðeins einn dag og heldur að skólagöngu sinni sé lokið og
það geti farið að lifa lífinu í heimi hins fullorðna manns.
Ekki er nóg að barnið gangi í skóla eina önn, heldur þarf
það að koma aftur og aftur og lærir í hvert sinn nýjar
lexiur, útskrifast úr einum bekk í annan, eftir því sem það
eldist og ef það heldur eðlilegum námshi’aða. Ekki eru öll
börn í sama bekk né eru þau heldur jafn gömul.
Ef vera frá annarri plánetu myndi fylgjast með lífi í
skóla aðeins einn dag, yrði hú vör við f jölda tilvika órétt-
lætis og ójafnaðar. Sum börnin eru ef til vill að fara aftur
og aftur yfir einfalda grundvallarstaðreynd eins og t. d.
mai’gföldunartöfluna. Önnur í efri bekkjunum gætu verið
að gera vísindatilraunir, verið að vinna að málaralist, tón-
list eða leiklist. Áhorfandinn gæti sagt: ,,Það ættu allir að
fá jöfn tækifæri þetta er alls ekki réttlátt". En við gætum
28
MORGUNN