Morgunn - 01.06.1985, Page 31
svarað: „Það sýnist einungis óréttlátt vegna þess að þú
fylgist ekki nógu lengi með. Þú sérð aðeins einn dag. Þau
börn sem nú eru í eldri bekkjunum og virðast eiga auðvelt
með að framkvæma ýmsa hluti eru einungis eldri. Þau
hafa verið lengur í skóla, en áður fyrr glímdu þau við
sömu einföldu verkefnin og þau yngri eru nú að fást við.
Þau yngri munu svo halda áfram frá einum bekk til ann-
ars og seinna meir munu þau standa á toppnum með allan
skólann að baki“.
Getur þú séð samlíkinguna við líf mannsins? I lífinu
sjáum við einstaklinga sem eru mjög óþroskaðir og virð-
ast þurfa langan tíma til að læra jafnvel einföldustu hluti.
Við sjáum annað fólk sem hefur til að bera mikla greind
og alls konar meðfædda hæfileika, sem á auðvelt með og
er fljótt að læra. Lífið er skóli fyrir sálir. Fyrri einstak-
lingarnir sem minnst var á eru litlu börnin, yngri sálirn-
a, hinir eru eldri sálirnar sem sótt hafa skólann mörg
misseri og hafa náð fullu valdi á léttari verkefnunum og
eru farnar að stunda framhaldsnám. En ungu sálirnar eld-
ast og röðin mun koma að þeim. Við sjáum mismunandi
mannverur á mismunandi stigum þroska í mismunandi
„bekkjum" vegna aldurs sálna þeirra og stundum að hluta
til vegna þess að sumir hafa stundað námið af meira kappi
og einlægni en meðbræður þeii’ra sem láta sér nægja að
„skríða í gegn“. Nákvæmlega eins og í skóla sjáum við
alltaf nokkur börn sem eru í hærri bekk en vanalegt er
fyrir þeirra aldurshóp. Þegar við sjáum aðeins eitt jarðlíf
þá er það vegna þess að við fylgjumst ekki nógu lengi með,
á svipaðan hátt og geimveran. Ef einn dagur er sem þús-
und ár og þúsund ár dagur ei meir, fyrir ásjónu Guðs, þá
er ein mannsævi á jörðu aðeins dagur í hinu ianga lífi
mannssálarinnar.
Á eftir ,,degi“ kemur nótt hvíldar og ánægju í heima-
högum. Hin hærri svið eru heimkynni sálarinnar en jörð-
in aðeins vettvangur skólagöngu hennar. Það er aldrei
eilífð nætur og hvíldar, heldur víxlun af einu tíðnissviði
Morgunn
29