Morgunn - 01.06.1985, Qupperneq 54
að opna augun á ný. — Já, hver verður ekki trúaður og
bljúgur við að horfast í augu við þung örlög, allskyns vá,
eða jafnvel dauðann sjálfan? — Á slíkum stundum getur
efinn orðið kveljandi, einkanlega ef þessum málum hefir
verið slegið frá sér og þau verið lítt eða ekkei't hugleidd,
svo maðurinn hefir svo til ekkert haldbært til bjargar í
andlegum efnum, þegar til þarf að taka. — Á slíkum stund-
um opnast oft augu trúarinnar og hver reynir þá ekki að
biðja fyrir sér og vonar á æðri mátt og veruleika — og
hverjum svellur ekki í brjósti þráin um að vonin bregðist
þeim ekki. — Þegar Páll postuli segir, að trú, von og kær-
leikur vari, en þeirra sér kærleikurinn mestur, þá merkir
það, að trúin er andleg sýn mannsis og vonin byggist á
henni, um örlög hans sjálfs, en kærleikurinn er umhyggj-
an fyrir náunganum og önn fyrir því að hann megi öðlast
hið bezta í öllu, eða hamingjuríkt líf hér og nú og sáluhjálp
um eilífð, — sem er það sama og maðurinn vonar fyrir
sjálfan sig. — Trúin og vonin eru það, sem snýr að mann-
inum sjálfum, — kærleikurinn að náunganum, og þótt hann
sé mestur, þá er hitt tvennt ekki síður mikilvægt og stórt,
fyrir hann sjálfan. Það er hans eigin lífssýn, það sem
ræður úrslitum um innihald lífsins og hamingjuna. — Því
hvar er hamingja þess sem á ekkert til að trúa og vona á?
Þeir, sem ekki leita né lenda inni á leið andlegrar leitar,
eiga þannig á hættu að verða að einskonar andlegum ösku-
buskum og lenda í sálrænni örbirgð. Þessi leit er anda
mannsins jafnnauðsynleg og brauðið er likamanum. Því
er það ekki að ófyrirsynju að Kristur segir: Maðurinn lifir
ekki af einu saman brauði“. Hann þarf að næra anda sinn
í trú og von, svo honum takist að finna sannleikann, sem
einn gerir manninn andlega sterkan og frjálsan.
Mörgum verður á að sinna ekki andlegum málum fyrr
en þeir finna ellina nálgast. Og oft er þá reynt að færa sér
í nyt það, sem fólk álítur hin fljótlegustu og handhægustu
ráð í fálmkenndu flasi, án þess að víðari sjónarmiða sé
gætt, enda þá engin áunnin reynsla vegna ræktarleysis
52
MORGUNN1