Morgunn - 01.06.1985, Side 69
Þá segir: „Fyrir handan búa menn í frjálsu landi í raun
og veru. Vér megum fara hvert sem vér viljum og finna
það, sem er við vort hæfi. Sé ljósið svo bjart, að vér þolum
það ekki, getum vér farið hvert og ein á sinn stað, og sér-
hver er sinn eigin dómari. . . .“
Þá nefnir hann eftirfarandi: Þeir, sem eru jarðbundnir
eru aðallega á því sviði, sem er nærri jörðu ... og geta ekki
hafið sig upp á svið ljóssins, en hafa samneyti við þá, sem
reika um skuggaríkin umhverfis yfirborð hnattarins. (stytt
mál). — Ennfremur segir: (Þau) þrjú svið, sem næst eru
jörðu eru (nánast) eitt svið. — Þar er þykk gufa upp úr
vítisdýki jarðar umhverfis oss. — Þriðja sviðið sem er hæst
er í beinu sambandi við jörðu. — Þarna virðast og vera
háskólar eða kennslustofnanir. Kennslan fer fram með
merkjum, táknum, myndum, geislum og kvikmyndasýn-
ingum. Þarna er lýst geð-stjórn. Kennarinn sýnir, í krystal-
kúlu, huga mannsins, — og rakinn hugsanaferill manna.
Sem dæmi, eins, sem var ekki illa hugsandi, aðeins ótaminn,
eigingjarn og óupplýstur. — Nefnd eru dæmi um aðrar
stofnanir og fullkomnari háskóla, hljómlistarskóla, kennslu-
sal í litameðferð, sal, þar sem eðlisfræðileg þróunarsaga
jarðar er sýnd, og efnafræðisal. — Heimsókn í mikla þi’ó-
unarhöll er rakin í smærri atriðum, en í styttu máli er frá-
sögnin þannig: Komið var inn í mikið mannvirki í þyrp-
ingu fleiri slíkra. Þar var aðeins einn hringlaga víðáttu-
niikill salur, þar sem allir veggirnir umhverfis voru út-
skornir með táknum eða eftirmyndum himinhnattanna, og
þar sást líkan af jörðinni. Þau snérust og voru ekki föst.
Þá myndir af dýrum, mönnum og trjám. Spurningum um
þetta var svarað þannig að þetta væri vísindastofnun. —
Gestirnir voru leiddir upp á svalir við mikið hringsvið, og
þeim sagt að smá sýning yrði haldin fyrir þá. — Bláa móðu
dró yfir sviðið. Ljósgeisli fór um salinn og staðnæmdist á
jarðarlíkaninu, sem uppljómaðist innan frá. Þá kom lit-
sterkari geisli fram og líkanið losnaði frá og tók að svífa
út í salinn og þegar það kom inn í bláu móðuna í miðjunni
MORGUNN
67