Morgunn - 01.06.1985, Síða 75
KYNNING Á MIÐLUM:
Mavis Pattilla
1 nóvember 1984 kom góður gestur í heimsókn til Sálar-
rannsóknarfélags Islands og hélt skyggnilýsingarfundi og
marga einkafundi. Tækifærið var nú notað til að fræðast
örlítið um Mavis Pattilla og bað ég hana að segja frá sjálfri
sér og hvernig það atvikaðist, að hún fór að starfa sem
miðill.
„Ég er fædd í Middleton, sem er smáborg nálægt
Manchester, 15. september 1939. Ég hafði enga reynslu eða
hæfileika sem barn þar til ég varð 26 ára gömul, þá varð
ég mjög veik og átti við ýmis vandamál að stríða varð-
andi heilsuna. Svo var það einn dag er ég sat í dagstof-
unni, að ég sá skyndilega gamlan mann birtast allt í einu
í einu horninu, og hann var eins raunverulegur og ég sé
big núna og hann sagði mér að finna lækningamiðil. Ég
var nýkomin af spítalanum þar sem ég hafði verið skor-
in upp við krabbameini og höfðu læknarnir gefið mér
litlar líkur að mér myndi batna, þar sem þeir héldu að
ekki hefði tekist að komast fyrir krabbameinið.
Eftir miklar rannsóknir fundu þeir það út, að ég var
með berkla í nýrunum, miltanu, lifrinni og smáþörm-
unum, svo heilsan var mjög slæm. Þegar Terry kom heim,
en Terry er eiginmaður minn, þá sagði ég honum að hann
yrði að setja mig á stofnun fyrir geðsjúklinga, því að ég
hefði séð gamlan herramann, sem hafði sagt mér að finna
lækningamiðil. Terry tók þessu vel og sagði, að ef það
Morgijnn
73