Morgunn - 01.06.1985, Page 87
öll trúarbrögð leita að nálgun við Guð. öll trúar-
brögð reyna að öðlast meiri innsýn inn í veröld sálarinn-
ar. Sum þeirra hafa öðlast mikinn og verðugan sess,
öðrum hefur mistekist. En af þeim öllum finnst mér spíri-
tisminn getta boðið einstaka og dýrmæta reynslu af krafti
Guðs.
Sph'itisminn hefur mikinn og verðugan tilgang. Fyrir
sannanir hans getur hann bent manninum á eilífð hans
sjálfs. Við að þekkja sjálfan sig getur maðurinn kynnst
Guði örlítið. Spíritisminn snertir ekki aðeins Guð, heldur
vaknar maðurinn til meðvitundar um Guðdóminn fyrir
áhrif síns innra manns, likt og rás sem opnast. Þetta er
tilgangur spíritismans og í þeim skilningi má kalla hann
trúarbrögð.
Þannig er spíritisminn vísindi, heimspeki og trúar-
brögð. Hann er allt þetta og meira til. Spíritisminn er lífið
sjálft.
Það er vitund um lífsaflið sem veldur hreyfingu og ljósi
á þessu jarðneska sviði, þar sem við fæðumst, lifum og
deyjum.
Þessi kraftur er birting kærleika Guðs. Guð er kærleik-
ur. Kærleikurinn er Guð.
Spíritisminn býður reynsluna af þeim kærleika. Kær-
leika sem áframhaldandi elsku til ástvina okkar sem látn-
ir hafa fært okkur sannanir fyrir tilvist þeirra eftir líkam-
legan dauða. Kærleika sem af persónulegri reynslu okkar
hefur leitt okkur til bætts lífernis. Kærleika sem líknandi
hönd sannar að „kærleikur þinn hefur enn þinn forna
mátt“ og það mikilvægasta — sem persónuleg reynsla af
þeim mikla mætti skapara alheimsins, sem við köllum Guð
og eigum tilveru okkar í.
Þetta er reynsla lífsins. Þetta er reynslan af spiritism-
anum. Þetta er spíritisminn.
Þýtt úr Psychic News.
MORGUNN
85