Útvarpstíðindi - 03.02.1941, Page 14
Kartöflumygla neðan á blaði.
BÆND AVIKAN:
Um jurtasjúkdóma.
Á útvarpsviku Búnaðarfélagsins
flytur Ingólfur Davíðsson magister
erindi um jurtasjúkdóma. Einkum
mun hann ræða um þá kvilla, sem
mest gerðu vart við sig í nytjajurt-
um s. 1. sumar.
Meðal þeirra má t. d. telja hina
algengu kartöflusjúkdóma, myglu,
stöngulsýki og kláða.
1 rófum og káli er það einkum kál-
Kartöflubjalla, lirfa og púpa, stækkuð
um helming.
maðkurinn, sem gert hefur skaða
(sbr. myndir). Nú segir I. D., að
fram sé komin ný lækningaraðferð
til að verjast þessum kvilla, og mun
hún ferða reynd hér á landi í fyrsta
skipti í sumar.
Kornræktin íslenzka hefur lítið
orðið fyrir barðinu á jurtasjúkdóm-
um. Helzt má þar nefna dílaveiki,
(sbr. mynd), sem stafar af skorti á
mangan og má því auðveldlega
lækna með því að bæta úr þeim efna-
skorti.
Ingólfur segir, að nú sé mjög al-
varleg hætta á ferðnni um að ýmsir
jurtasjúkdómar berist til lands-
ins með varningi, sem hið erlenda
setulið flytur með sér. Sérstaklega
varar hann menn við grænmetis-
varningi og ýmsu rusli.
Kálmaðkar í kálrótum.
246
ÚTVARPSTÍÐINDI