Útvarpstíðindi - 12.12.1941, Page 22

Útvarpstíðindi - 12.12.1941, Page 22
Útvarpið á bænum Gamanleikur. Gamanþátturinn ..Útvarp á bæn- um“ var leikinn í útvarpinu fyrir nokkrum árum og þótti mörgum hann skemmtilegur og fjörugur. Hefur út- varpsráð því ákveðið, að þátturinn verði leikinn að nýju 20. des. Birtist hann þá í endurskoðaðri útgáfu, því að ýmislegt var orðið úrelt í upphaflegri gerð hans. Persónur leiksins eru fjórar.' Eru það bóndi og kona hans, dóttir þeirra og vinnumaður. Þau eru öll mjög hrifin af útvarpinu og gera sér mjög tíðrætt um dagskrá þess og það fólk, sem oftast kemur fram þar. Hafa þau þó misjafn- lega mikið dálæti á starfsfólki útvarps- ins, eins og gerist og gengur og gera sér misjafnar hugmyndir um þá. Hefur heimasætan t. d. sérstakt dálæti á þulnum og Vilhjálmi Þ. Gíslasyni, hús- freyja á prestunum, sem oftast prédika í útvarpið o. s. frv. Inn í leikinn eru ofnir söngvar og gamanvísur og verður nokkrum nýjum vísum bætt inn í þessa nýju útgáfu. I. (Lag: Komdu og akoðaðu i ki*tuna mína) það baetir oft skapið, er berst hún til okkar, blíðlega röddin hans Vilhjálms míns Þ. Þegar útvarpsins ró spilla óperuflokkar og allskonar glymskrattar þeyta sitt horn, Tra -ra la- la- la-. Því hóglegt er, Vilhjálmur, val þinna orða, hún virðist jafn ánœgð þín heimspekingssál, sem þú alltaf sért nýlega búinn að borða brennheitan graut upp úr sex marka skál. Tra- ra- la- la- la-. Þótt fleiri þú vinnir oft verk en þín eigin, jafn vandræðalaus er þín framkoma öll, þér tekst jafnvel dável með daginn og veginn er dóninn hann Jón hefur strokið á fjöll. Tra- ra- la- la- la- la-. Og skrafaðu alltaf ,,í guðs friði“ góði, um gamalt og nýtt og um bækur og menn, ég sit hér og hlusta eftir sérhverju hljóði, er sendirðu frá þér, — ég þoli þig enn. Tra- ra- la- la- la-. II. Stóð ég úti á Austurvelli, hæ, faddirí, faddíra-la-la-la við bílamjálm og mótorskelli, hæ, faddirí, faddíra-la-la-la, ég horfði á frægan forsetann, fellur á skallann s^ansgrænan. hæ, faddirí, faldira-la-la-la, Hæ, faddirí, faddira-la-la-la, Uti hjá grænum Austurvelli, hæ, faddirí, etc. gnæfa hallir grænar af elli hæ, faddirí, etc. Og aðrar nýjar eru þar útvarpssætur Jónasar hæ, faddirí, etc. Sá ég þar um völlinn vaga. hæ, faddirí, etc. með svartan hatt og hvítan kraga hæ, faddirí, etc. Vilhjálm góða Gíslason með gamlan, þykkan lexikon hæ, faddirí, etc. Jón Eyþórs gekk þar um grænan bala hæ, faddirí, etc. sá ber nú ei lengur bratt sinn hala hæ, faddirí, etc. Hættur að stjórna storminum og stopp í degi og veginum, hæ, faddirí, etc. 134 ÚTVARPSTÍÐINDl

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.