Útvarpstíðindi - 27.09.1943, Qupperneq 4
sem flestum, svo að úi’ miklu sé að
velja.
— Var ekki orðin brýn nauðsyn ú
því, að starfslið útvarpsráðs yrði auk-
ið?
— Jú, tvímælalaust. Þegar ég byrj
aði fyrst að vinna hér í skrifstofunni
furðaði ég mig satt að segja á því, hve
starfsfólk útvarpsráðs var fátt, og var
það eina bótin, að valinn maður var i
hverju rúmi. Fastir starfsmenn voru
aðeins tveir: skrifstofustjórinn Helgi
Hjörvar, og frú Þorleif Norland, sem
hefur á hendi daglega bókfærslu,
spjaldskrárgerð o. s. frv. Auk þess
vann þáverandi formaður útvarps-
ráðs, Jón Eyþórsson, allmikið að und-
irbúningi dagskrár og vann í skrif-
stofunni nokkra tíma á degi hverj-
um. En þótt mér hafi verið bætt
við er nóg að starfa fyrir okkur öll
eftir sem áður og það þótt enn væn
bætt starfsfólki. Það sem gerir það
skemmtilegt að vinna hjá útvarpinu
er einmitt það, að þessi stofnun fær á-
hugasömum starfsmönnum sínum sí-
fellt ný og vaxandi verkefni í hendur.
— Geturðu ekki sagt okkur eitt-
hvað um fyrirætlanir útvarpsráðs
um vetrardagskrána?
— Nei, þið verðið að snúa ykkur til
æðri staða til þess.
— Er ekki margt á prjónunum í
sambandi við leikritaflutning út-
varpsins?
— Jú, og ég held að óhætt sé að
gera sér góðar vonir um starf Lárusar
Pálssonar, sem nýlega hefur verið
ráðinn leiklistarráðunautur útvarps-
ins. Hann mun hafa lagt fyrir
útvarpsráð áætlun um -leikritaflutn-
inginn allt fram á næsta vor, enn-
fremur í’áðið leikstjóra og skipt með
þeim verkum. En að mínum dómi er
starfi Lárusar ekki þar með lokið.
Þess er mikil þörf, að hann sé jafnan
til aðstoðar og eftirlits við æfingar,
leikendaval, útsendingu o. fl. Við
bíðum þess með eftirvæntingu að sjá
árangurinn af þessu fjölþætta starfi
Lárusar Pálssonar í vetur.
Um Ragnar skal þe'ss annars getið,
að hann er fæddur og uppalinn í Búð-
ardal, foreldrar hans eru Guðrún Hall-
dórsdóttir frá Arnardal í Isafjarðar-
sýslu og Jóhannes Jónsson verzlunar-
maður, ættaður úr Dalasýalu. Árið
1934 tók Ragnar stúdentspróf á Ak-
ureyri, en kom þá suður til háskóla-
náms og tók kandídatspróf í íslenzk-
um fræðum árið 1939. Síðan hefur
hann aðallega starfað við blaða-
mennsku og kennslu. Eg sagði í upp-
hafi greinarinnar, að Ragnar væri
gamall kunningi hlustenda, og vil í
því sambandi sérstaklega nefria gam-
awþætti hans, sem margir hafa
skemmt hlustendum. „Utvarpið á
bænum“, er eftir Ragnar, þá „Af-
mælisþáttur útvarpsins“ og „Stúd-
entarevían“, sem leikin var 1. desem-
ber fyrir 2 árum. Þá mun hann einnig
meðgánga faðernið að þáttunum „Jón
í kotinu“, en þeir voi’.u 10 alls, og það
þótt þeir væru misjafnlega vinsælir
hjá „þeim sem betur mega.“
Auk þessa hefur Ragnar lagt margt
til dagskrárinnar, bæði með upplestri,
þýðingum og fleiru. Og vel má segja
það hér, að Útvarpstíðindi hyggja
gott til samvinnu við Ragnar, eftir
þeirri reynslu sem þegar er fengin.
G.
4
ÚTVTRPSTÍÐINDI