Útvarpstíðindi - 27.09.1943, Blaðsíða 13
1111111111111111111111111111111111111111111111
Ríkisútvarpið
Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunarverk er að ná
til allra þegna landsins með hverskonar fraeðslu
og skemmtun, sem því er unnt að veita.
AÐALSKRIFSTOFA ÚTVARPSINS
annast um afgreiðslu, fjárhald, útborganir, samn-
ingagerðir o. s. frv. Útvarpsstjóri er venjulega til
viðtals kl. 2—4 síðdegis. Sími skrifstofunnar er
4993. Sími útvarpsstjóra 4990.
INNHEIMTU AFNOTAGJALDA
annast sérstök skrifstofa. Sími 4998.
ÚTVARPSRÁÐIÐ
(Dagskrórstjórnin) hefur yfirstjórn hinnar menn-
ingarlegu starfsemi og velur útvarpsefni. Skrif-
stofan er opin til viðtals og afgreiðslu fró kl. 2—4
síðd. Sími 4991.
FRÉTTASTOFAN
anna*t um fréttasöfnun innanlands og frá útlönd-
um. Fréttaritarar eru í hverju héraði og kaupstað
landsins. Sími fréttastofu 4994. Sími fréttastjérs:
4845.
AUCLÝSINGAR
Útvarpið fjytur auglýsingar og tilkynningar ti1
landsmanna með skjótum áhrifamiklum hsetti.
Þeir, sem reynt hafa, telja útvarpsauglýsingar
áhrifamestar allra auglýsinga. — Auglýsingasimi
1095.
VERKFRÆÐINGUR ÚTVARPSINS
hefur daglega umsjón með útvarpsstöðinni,
magnarasal og viðgerÖastofu. Sími verkfrœðing.
4992.
IÐGERÐARSTOFAN
annast um hverskon-- viðgerðir og breytingar
viðtækja, veitir leiðbeiningar og fræðslu um not
og viðgerðir viðtækia. Sími viðgerðarstofunnar
4995.
TAKMARKIÐ ER:
Útvarpið inn á hvert heimili! Allir landsmenn
burfa að eiga kost á því, að hlusta á seðaslög
þjóðlífsins; hjartaslög heimsins.
N . RlkÍMÚtuarpH.
«:iiiiiiiiiiiiMtiiiiiiiiimi!iiiiiiiiiiiiimimimtiiiiMiiiii(miimtttiiiiiitiii
^Píána-SAMKEPPNIN
Úrslií.
í fyrsta hefti 5. árg. var heitiö
þrem verðlaunum — 50, 25 og 15
krónum — fyrir þrjár beztu vís
ur er Útvt. bærust.
Þátttaka var mjög góö. Viö höf-
um birt 157 vísur frá 53 höfund-
urn, en af öllum þessum mikla
vísnafjölda virtist okkur engin bera
svo ótvírætt af, aö hún ætti skiliö
aö hljóta fyrstu verölaun. Viö höf
um því komiö okkur saman um
aö vcita þremur höíundum 2. verö-
laun, 25 krónur, og birtum viö vís-
urnar og nöfn höfundanna hér á
eftir. (Röðin er ekki af handahófi)'
Staka.
Stundum kalt og stundum heitt,
stundum glys og leikur,
en þetta allt er ekki neitt
annað en fís og reykur.
Gísli Ólafssou
frá Eiríksstöðum.
Astavísa.
Ætli það verði enn á ný
örlög vona minna,
að drukkna einhvern daginn í
djúpi augna þinna?
Gísli H. Erlcndsson,
Rvík.
Haustkyrrð.
Lognið ríkir ljúft á sæ,
leggst í djúpið alda.
Yfir hljóðum heiðarbæ
himnar bláu tjalda.
Sigurður Draumland,
Akureyri.
ÚTV ARPSTÍÐINDI
13