Útvarpstíðindi - 27.09.1943, Síða 10

Útvarpstíðindi - 27.09.1943, Síða 10
FRA DEGI TI L DAGS Tómstundir og menntun. Félags- og skemmtanalíf. Ágúst Sigui'ðsson cand. mag. flyt- ur tvö erindi um þessi efni. Námsflokkastarfsemin er tiltölu lega ný hreyfing hér á landi, en sem kunnugt er, er hún mjög víðtæk og máttug á Norðurlöndum, einkum í Svíþjóð. Sá maður, sem af mestum árangri hefur unnið að þessum málum hér á landi hin síðari ár, er Ágúst Sig- urðss. magister, forstöðumaður náms- flokka Rvíkur. Hann er ungur og öt- ull kennari. Fyrir stríð starfaði hann um hríð sem fyrirlesari á vegum menningarsambands alþýðu í Svíþjóð og flutti 200 fyrirlestra um ísl. efni í Svíþjóð og Finnlandi, og flutti auk þess nokkur erindi i sænska og norska útvarpið. Á þessum árum kynnti hann sér ítarlega tilhögun og starfsaðferðir þessara sænsku menningarfélaga og í ársbyrjun 1939 hófst námsflokka- starfið hér í Rvík. Segist hann hafa átt að fagna góðum skilningi og stuðn- ingi af hálfu almennings og stjórn- arvalda. En fólk hefur þó ekki gert sér þess nægilega Ijósa grein, segir hann, að hér er ekki um venjulegan skóla að ræða og að þessi starfsemi hentar bezt fullorðnu fólki, þar eð aðalatriðið er sjálfstæð tómstundavinna eftir per- Ágúst Sigurðsson magister. sónulegri getu og þörfum hvers ein- staklings. Nokkur þröskuldur í vegi befur og verið, hve tómstundir margra vinn- andi manna og kvenna hafa orðið iáar á þessum óvenjulegu tímum. Það sem ég vildi leggja aðaláherzlu á í fyrra erindinu er það, að svo að segja hver sem er getur með náms- flokkafyrirkomulaginu bætt sér upp það, sem honum finnst mest ábóta- vant um þekkingu sína og skóla- menntun. f síðara erindinu geri ég ráð fyrir að gæta muni töluverðrar gagnrým á skemmtanalífinu eins og það er nú, og jafnframt bent á hvernig mætti betur fara í þeim efnum. Ungur leikari úr Hafnarfirði, Sveinn V. Stefáns- son, les upp smásögu eftir Guðmund Kamban 3. okt. Að sögn þeirra er til þekkja er hér á ferð efnilegur ungur maður, og nýr í útvarpinu. 10 ÚTVTRPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.