Útvarpstíðindi - 06.12.1943, Blaðsíða 5

Útvarpstíðindi - 06.12.1943, Blaðsíða 5
tffótascKja cjtiz »Mwnat ©tí. ©lí.a^-H'Ho* ■£■ Hann liét Helgi, og ég kynntist hon- um niðri í gufukatli á ensku stríðsskipi. Mér er hann minnisstæður. Og jólin, sem hann hélt, meðan við vorum ketilhreins- arar, líða mér seint úr huga. En að þeirri jólasögu er dálítill aðdragándi. A einum síðsumarmorgni þrömmuðum við taktlaust og skrykkjótt fram bryggj- una, fimm ketilhreinsarar, og bárum haf- urtaskið tilhcyrandi vinnunni: fötur, kósta, skröpur, sköfur, hamra, vírbursta, kerti, kaffibrúsa og matarpinkla. Langs með hafnarbakkanum lágu flutninga- skipin, flest erlend og framandi, gráir drungalegir, sóti drifnir skrjóðar, sums staðar fjórir til sex síðu við síðu. Þarna voru kvíar stórskipanna, en í vestur- höfninni lágu fiskiskipin okkar, lítil, sæ- þvegin og hnarreist, eins og djörf og for- vitin börn. Við klifruðum út í eitt stríðsskipið, grámulegan ryðkláf, röðuðum okkur kring um ketilopið og skimuðum niður í grásvart gímaldið, en á rnóti okkur lagði Jjyrkingslegan hitastraum. — Er hann heitur? spurði einhver. — Hann er ekki kertisfær, enda sízt nð furða, þar sem hann var ekki blásinn út fyrr en klukkan fimm í morgun. — Hvað á þá að gera? — Karldurgurinn er búinn að lofa að ÚTVAKPSTÍÐINDI skila katlinum börðum, sköfnum og burstuðum fyrir nón. — Fjandinn hafi það, — við látum Jjó ekki steikja okkur fyrir ein skítug daglaun. Þannig töluðu Jreir fjórir um stund, en ég, sem var nýr í starfinu, lagði ekk- ert til málanna; — ég, sem vissi ekki svo mikið sem það, að ketill, sem ekki var kertisfær, var svo heitur, að kerti bráðnaði niðri í honum, — en með kert- um átti hver hreinsari að lýsa fyrir sér við vinnuna. Eftir nokkurt þóf og þjark stakk einn náunginn sér niður um opið og skreidd- ist út undir hvelfingu ketilsins. Það var Helgi. Hann var lítill maður og þunn- vaxinn, skrækur í rómi. Innan skamms sendi hann tóninn neðan úr katlinum og ögraði til niðurgöngu. Hann hafði kveikt á kerti sínu og flöktandi skímu brá fyrir. Þeir fóru eiiln af öðrum niður, kveiktu ljósin, dæstu og bölvuðu, kölluðu hver til annars. Það umdi einhvemveginn svo drauga- lega í Jæssu glórulausa víti, að ég fyllt- ist óhugnanlcgum geig, Jregar ég lagðist á magann og lét fæturna síga niður í ket- ilinn. Ég var hvorki feitur né þrpkvax- inn á þeim árum, en opið reyndist svo þröngt, að lengi stóð á bakhlutanum og mjöðmunum, Jjangað til ég seig niður og tyllti tánum á glóðheita pípu. Því næst 105

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.