Útvarpstíðindi - 06.12.1943, Síða 22

Útvarpstíðindi - 06.12.1943, Síða 22
DANSHLJÓMSVEITIRNAR Framh. af l>ls. 110. hapn gefur hljóðfæraleikurunum til að gefa ímyndunarafli sínu lausan tauminn. Jazz er einstakur í sinni röð, og það hef- ur aldrei koniið fram neitt, sem líkist honum í list“. Eitt er staðreynd, sem ekki verður í móti mælt. Yngri kynslóðin vill heyra jazz, og sumir ekkert nema jazz. Finnst. mér því ekki hýggilegt, að fordæma hann og vilja kasta honum fyrir borð, 'sem einhverju siðspillandi. Hann hcfur þegar sýnt, að honum verður ekki vísað frá með „órökstuddri" dagskrá. Við höfum dagskrárlið í útvarpinu, er heitir tónlistarfræðsla útvarpsins. Þetta er mjög þýðingarmikil og þakkarverð viðleitni af hálfu útvarpsins, til að kenna okkur að hlusta á tónlist og skilja form tónlistar. — Ég hef því miður ekki haft mörg tækifæri til að ldusta á þennan dag- skrárlið, en þriðjudag einn í nóv. s. 1. heyrði ég Pál ísólfsson skýra sónötu eft- ir Grieg. Þetta fannst mér ágætt, sér- staklega vegna þess, að á eftir hinum ágætu skýringum Páls heyrði maður allt vcrkið leikið af hinum snjalla píanóleik ara Dr. Urbantschitsch. — Þessi þáttur ætti að mínu áliti ávallt að vera í sam- bandi við tónleika tónlistarskólans. Að- eins ættu verkefnin ekki að vera of strembin fyrstu árin. Mér virðast danslögin aldrei hafa ver- ið höfð í hávegum hjá útvarpinu. Þau hafa ekki einu sinni verið kynnt, er þeim hefur verið útvarpað. — Væri nú ekki rétt að skipta um, og lofa „garminum honum Katli“ að vcra með, þegar talað er um tónlist. Jafnvel að taka liann nicð í fræðslutímunr útvarpsins. Það yrði á- rciðanlega vel þegið af ungu kynslóð- inni. Bjarni Böðvarsson ■.. hvað er meira þroskandi fyrir skynbragð manns á hljómfalli, en einmitt hið sérkennilega og síbreyti- lega hljómfall danslagsins ... ... Hlustið, hlustið og lilustið betur. seyir Þárir Jónsson. Það er ekki ósjaldan, að rnaður heyrir því haldið fram, að jassmúsík hafi sið- spillandi áhrif á fólk, fyrir nú utan það, að hún sé bara villimanna-öskur og geti tæpast talizt til tónlistar. Eg verð að segja það, að þessar fullyrðingar virðast mér með öllu tilhæfulausar og komnar fram vegna þess, að fólk hefur ekki kynnt sér málefnið sem skyldi. Það má segja, að hljómasamböndin séu djarfleg og krefjist þess, að tónheyrn- in sé þroskuð, og er því ekki nema eðli- legt, að þeir, sem hlusta með hálfu eyra, heyri ekki nema eitthvert óskiljanlegl tónarugl. En það er síður en svo, að ekki sé farið eftir föstum tónlistarlegum regl- um. Og hvað er meira þroskandi fyrir skyn- bragð manns á hljómfalli, en einmitt hið sérkennilega og síbreytilega hljómfall danslagsins. — Verður því „jassinn“ að teljast ein greinin á stofni tónlístarinnar. Ilvað hin siðspillandi áhrif snertir, geri ég ráð fyrir, að umhverfið frekar eu áhrifin frá „jassinum“ skapi þau, og jafn- vcl, að þeirra sé að leita í þroska fólksins sjálfs. En það má segja um iðkendur „jass- ins“, að þar er misjafn sauður í mörgu fé, eins og annars staðar, og ósmekklegt þykir mér, þegar tekin eru sígild verk hinna miklu „klassisku" meistara, og gerð tilraim til að breyta þeim í „jass“. Og svo langt hafa. þessar öfgar gengið. að ég hef jafrivel heyrt „Ave Maria“ eft- ir Sehubert, spilað sem „fox trot“, og það sem meira er, fólkið virðist dansa eftir því af hrifningu. Ég tek aðeins þetta 122 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.