Útvarpstíðindi - 06.12.1943, Blaðsíða 27
IIUGLEIÐINGAH
UM DAGSKRÁREI'Nltí.
Yfirleitt hygg ég óhætt að ætla. að hlustendur
vænti meira af útvarpimi í vetur en oft áður.
Yniis nýmæli, sem hið nýja ntvarpsráð licfur tekið
up]>, mælast vel fyrir. Síðasta vetrardagskrá sýndi
|>að Ijóslega. að knýjandi l>iirf var að nýjn lífi
væri veitt í stjórn útvarpsins.
I’að er sérsttJk ástæðá að minnast >í kvöldvök-
urnar sem fluttar voru samfelldar úr útvarpssal.
Þær eru nokkurt nýmæli. Það, sem fyrst vakti at-
hygli hlustandans, var hraðinn, sem einkenndi all-
an flutning hvers atriðis frá upphafi til enda. Og
yfirleitt var efnið, sem flutt var, smekklega valið
og féll vel inn i ramman. Fyrri kvöldvakan
má j>ó hiklaust teljast betur úr garði gerð en hin
síðari, sem flutt var af plötum. Plötuflutningur-
inn var ekki nægilega skýr og a. m. k. einu sinni
varð alllangt hlé. af einhverjum orsökum. Og efni
síðari vökunnar var heldur „þynnra". En að öllu
atliuguðu ber hlutaðeigendum þakkir skildar fyrir
frammistöðuna. Og vonandi fáum við fleiri vökur
í sama stíl.
Utvarpssagan lians Karls ísfelds hefur hlotid
heldur ómilda ílóma og að sumu leyti að ómaklegu.
Að vísu var bókmenntagildi hennar ekki mikið eða
stíllinn rishár, en samt er hún ekki algert lélt-
meti. T. d. h.vgg ég, að kæruleysi og lífsgleði suð-
hafsbúans sc nokkúð vel lýst með hegðun og
hugsunarhætti Jónasar Tóttulls og sona hans.
Auk þess hafði hún þann kost, að engum datt
stríð í hug, meðan á lesiri hennar stóð. Og l>að er
þó alltaf nokkuð. Ekki vil ég skilja við sumar-
dagskrána svo, að ég þakki ekki Birni Franzsyni
fyrir þáttinn um stjörnufræði og alheiminn, sem
hann flutti undir þættinum „Þýlt og endurságt".
Það mætti koma meira af slíku efni í alþýðlegum
búningi. — Fleira gott mætti um sumardagskrána
segja. T. d. ber að þakka fyrir hina ágætu hljóm-
leika Utvarpshljómsveitarinnar á fimmtudögunum
og eins þáttinn „Lög og létt l>jal“.
Vetrardagskráin hefur farið vel af stað. Kvöld-
vakan 27. okt. var góð. Erindi Brodda Jóhannes-
ÚTVARPSTÍÐINDI
koma út hálfsmánaðarlega allt árið, 16 og
20 síður í senn, rúmar 400 síður yfir árið.
Árgangurinn kostar kr. 15.00 og greiðist
fyrirfram. Afgreiðsla Hverfisgötu 4. Sfmi
5046. Útgefandi h.f. Hlustandinn. Prentað
í Víkingsprent h.f. Ritstjórar og ábyrgðar-
menn: Gunnar M. Magnúss og Jón úr Vör.
sonar „Ilestur á heimleið" var hvorki stórbrotið
né viðburðaríkt, en samt tókst honum merkilega
vel að sníða svo látlausu efni smekklegan og við-
'eigandi stakk. Slikt er ekki öllum fært. En upp-
lestur Kolbeins úr Kollafirði var ekki sem beztur.
Hann las kvæði sín allt of hratt. Enda heyrðist
það vel, að liann ofbauð sér, því að lionum \-arð
hvað eftir annað mismæli.i Þetta spillti mjög á-
hrifum upplestursins. Og kvæðin nutu sín alls
ekki. Aftur á móti r ar upplestur Jóns frá Kald-
aðarnesi með afbrigðum góður. Lestur Einars Öl.
Sveinssonar úr Islendingasögum fór vel af stað
og ætti að geta orðið vinsæll og menntandi dag-
skrárliður. Inngangsorð' Einars 01. voru hæfilega
löng og glögg. Ber að leggja mikla áherzlu á það,
að þær skýringar, sem fyrirlesarar flytja frá sjálf-
um sér séu glöggar, stuttar og alþýðlegar. t hverj-
um tíma ætti upplesari að tala eitthvað um efnið',
annað hvort það sem lesið var, eða verður, ellegar
um söguna almennt. — Þátturinn Frá útlöndum
hefur að' mér finnst aldrei náð sinni fyrri reisn.
síð'an Sigurður Einarsson hætti að flytja hann.
Þeir, sem nú flytja þáttinn, Jón Magnússon og
Axel Thorsteinsson, eru ekki ryglulega áheyrilegir
útvarpsfyrirlesarar. þótt þeir séu ekki leiðinlegir.
Aftur á móti eru erindin venjulega áheyrilega
samin og liklega vel lil þeirra vandað. En ekki ætti
það að' skaða, þótt fleirum væri hleypt að' hljóð'-
nemanum undir þessum dagskrárlið. — Svo vil ég
í lokin taka undir það, sem drepið var á í Ut-
varpstíð. fyrir skömmu, viðkomandi rökræðum. —
Skemmtilegt og menntandi væri að fá t. d. tvö
umræðukvöld, annað t. d. um trúmál, en liitt um
bókmenntir og bókmenntastefnur eða þá eitthvað
annað. Bsv.
STAKA.
Hlýt ég gjöldin fanga flóns,
forlög köld við hjari,
lýt ég völdum lasts og tjóns
lífs á öldufari.
Ilalldór Ouðmundsson, Rvk.
ÚTVARPSTÍÐINDI
127