Útvarpstíðindi - 06.12.1943, Blaðsíða 29

Útvarpstíðindi - 06.12.1943, Blaðsíða 29
Víst mig dreymir vel og sœtt. Vilhjálmur er að tala. Eyvindur á Fjöllum. ÞAÐ ER ANNA-ÐHVORT í ÖKLA EÐA EYRA, EN ÝMISLEGT - ER ÞÓ GOTT OG BLESSAÐ. Við, sem búum í dreifbýlinu, höfum fátt ann- að en útvarpið til skemmtunar. Þess vegna lang- ar mig að tala ofurlítið um dagskrána. Skyldi engum nema mér þykja einhliða músík á sunnu- dögum? Það er annað hvort í ökla eða eyra. Klassisk músík — eða jazz — á hæðsta stigi. Berið Ragnari Jóhan'nessyni mína beztu kveðju fyrir lestur útvarpssögunnar. Nýr litvarpsþátlur hefur verið tekinn upp, sem nefnist „samfelld dagskrá". Mér liafa líkað þau kvöld vel, en það er bara eitt, sem útvarpið þarf að muna, og það er, að „hláturinn lengir lífið“. Ég er harmoníku- vinur og snkna þeirra mínútna, sem við höfum fengið í viku hverri, en þingfréttirnar hafa tekið af. Sér útvarpsráð ekki leið til að við getum fengið nokkrar mínútur á öðrum tímum en vant var? (Því ])ingið getur staðið nokkuð lengi). I 4. hefti Utvarpstíðinda skrifar G. um dans- hljómsveit Þóris Jónssonar. Ég er í öllum atriðum sammála G.. en því fáum við ekki að heyra í Bjarna Böðvarssyni? Er ekki hægt að fá Éélag harmoníkuleikara til að skemmta eitt laugar- dagskvöld? Ég hef — því miður — ekki smekk fyrir jazz. Allt ungt fólk í þessu þorpi vill heldur þessa gömlu góðu „Norðurlanda-músík", þar sem hægt er að blíslra lagið í róleglieitum með hljóm- sveitinni, jafnvel þó lagið sé ekki kynnt áður. Ég vona að við fáum oftar að heyra í Braga Hlíðberg. Að lokum skora ég eindregið á útvarps- ráð að halda áfram með „danslag kvöldsins" í danslagatímum annan hvern sunnudag. Þá væri mest gaman að fá nýtt lag í hvert sinn, en ekki gamla slagara. Þeir, sem framleiða músík úti á landi, hafa gaman að spreyta sig á að koma með „danslag k)öldsins“ á næsta dansleik þar á eftir. Við. sem viljum fylgjast með íþróttunum hörm- um það mjög, ef ekki verður hægt að útvarpa frá fleiri í|)róttamótum, en gert hefur verið hing- að til. Öm í Ólafsfirði. Gleðileg jól! ÚTVARPSTÍÐINDI Annað hefti .kemur nœstu daga. PERÐAÞÆTTIR OG MINNINGAR. eftir Guðmund Thoroddsen. EFNI: BERNSKUMINNINGAR ÉRÁ BESSASTÖÐUM. Latínuskóli og prentsmiðja. Prentsmiðju-danska. Reykjavíkurferð. Gestakomur og gleðskapur. Bóklestur og kveðskapur. Ileimilisbragur. 1IORNSTRANDAÞÁTTUR. Iljá Hannesi á Látrum. Sex dægur ó fjöllum. í fylgd póstsins frá Búðum til Betúels gamla í Ilöfn. Komið að Horni. Yfir „Ófæru“ til Bolungarvíkur á Ströndum. FLATEYJARPERÐ. Einn hestur ú eynni. Elliheimilið og „Flateyjarframfarastiftun“. Áskrifendur í Reykjavík vitji lieftanna í afgreiðsluna, Hverjisgötui, ef þeim leið- ist að híða ejtir því að tvö hin fyrstu verði borin til þeirra. ÖTVARPSTÍÐINDI 129

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.