Útvarpstíðindi - 10.11.1947, Qupperneq 3
ÚTYARPSTÍÐINDI
411
koma út hálfsmánaðarlega.
Árgangurinn kostar kr. 25.00 og
greiðist fyrirfram. — Uppsögn er
bundin við áramót. — Afgreiðsla
Hverfisgötu 4. Sími 5046. Heima-
sími afgreiðslu 5441. Póstbox 907.
Úlgefandi: H.f. Hluslandinn.
Prentað í ísafoldarprentsmiðju h.f.
Ritstj. og ábyrgðarmenn: Vilhjálm-
ur S. Vilhjálmsson, Brávallagötu 50,
sími 4903, og Þorsteinn Jósepsson,
Grettisgötu 86.
Nýungar
í dagskránm
ÞAÐ VÆRI ósanngjarnt að viður-
kenna ekki, að nokkuð beri á nýjung-
um í útvarpinu um þessar mundir.
Bæði er, að nýir þættir, lögfræði-
þátturinn og náttúrufræðiþátturinn
hafa nú byrjað, Lög og létt hjal hef-
ur verið endurvakinn — og nýir, að-
allega ungri menn, koma fram. Þátt-
ur Ólafs Jóhannessonar prófessors
fer mjög vel af stað, og bendir allt
til þess, að útvarpshlustendur muni
ekki vilja missa hann eftir að þeir
hafa kynnzt honum. Spái ég því, að
þessi þáttur muni verða langlífur í
útvarpinu. Náttúrufræðiþáttur Ást-
valdar Eydals er og fróðlegur og
skemmtilegur, en sá galli er á þeim
þætti, að Ástvaldur flytur ekki vel,
því miður. Hann er flámæltur, og
það er einn hvumleiðasti galli sem
þekkist á flytjanda í útvarpi. Þetta
kom mér alveg á óvart. Ég þekki
Ásvtald, og hef nokkrum sinnum tal-
að við hann, og alls ekki orðið var
við þennan galla á máli hans. Má því
vera, að hann komi alls ekki fram
nema þegar hann flytur ræðu. En
það gæti líka bent til þess, að hæg-
ur vandi sé fyrir Ástvald að bæta úr
þessu. Ástvaldur er mjög vel mennt-
aður maður á sínu sviði, og væri því
mjög slæmt ef þátturinn hans næði
ekki tilgangi sínum vegna þessa leið-
inlega galla.
Jón Þórarinsson tónskáld hefur nú
starfað við útvarpið í tæpan mánuð
eftir heimkomuna. Við höfum strax
orðið vör við hann, í músíkinni, og
með þætti hans um tónlistina. Þessir
þættir eru nýung, og tel ég þá til
mikilla bóta fyrir dagskrá útvarps-
ins. Jón kann að tala við okkur, sem
fáfróðir erum um tónlist svo að við
skiljum hann, en það er vitanlega
fyrsta skilyrðið til þess að við get-
um lært að skilja þessa drottningu
allra lista. Eg vil þakka Jóni Þór-
arinssyni fyrir þættina og um leið
fullvissa hann um. að hann er á
réttri braut. Þessir þættir hans miða
mjög að því, að glæða tónlistarþekk-
ingu meðal alþýðu, en það er mikið
atriði og lofsamleg viðleitni.
Páll Isólfsson er aftur kominn í
útvarpið. Allir munu fagna því, þó
að ekki hafi hann vakið Þjóðkórinn
sæla frá dauðum. Páll hefur, þegar
þetta er ritað, flutt fyrsta erindi sitt
af sjö, sem hann kallar „Við orgel-
ið“. — Þetta erindi hans var mjög
hugðnæmt, óg hygg ég, að hlustend-
ur, hvort sem þeir kunna góð skil á
músík eða ekki, séu mér sammála um